Rýmdu þinghúsið með gasi og kylfum

Klukkan er að orðin rúmlega tvö að nótt að staðartíma …
Klukkan er að orðin rúmlega tvö að nótt að staðartíma Hong Kong, en lögregla lét til skarar skríða gegn mótmælendum laust eftir að klukkan sló tólf á miðnætti. AFP

Óeirðalögreglumenn í Hong Kong hafa náð að koma mótmælendunum sem réðust inn í þinghúsið þar í dag, út að nýju. Flestir fóru þeir út án mótspyrnu, eftir að lögregla beitti  táragasi og kylfum fyrir utan þinghúsið.

Klukkan er að orðin rúmlega tvö að nótt að staðartíma Hong Kong, en lögregla lét til skarar skríða gegn mótmælendum laust eftir að klukkan sló tólf á miðnætti.

Lögreglumenn umkringdu mótmælendur í kringum þinghúsið og notuðu bæði táragashylki og kylfur við að dreifa hópnum. Flestir mótmælendurnir sem staddir voru inni í þinghúsinu á þeim tímapunkti yfirgáfu þinghúsið að svo búnu án mótspyrnu.

Mót­mæli hafa staðið yfir í Hong Kong síðustu vikur, eða síðan að frum­varp sem skyldi leyfa framsal af­brota­manna til Kína var lagt fram á þing­inu.

Af­greiðslu þess hefur verið slegið á frest um óákveðinn tíma en nú er kraf­a mótmælenda einnig orðin sú að því verði end­an­lega sópað út af borðinu og sömu­leiðis að héraðsstjór­inn Carrie Lam segi af sér.

Lögregla notaði táragas gegn mótmælendum í Hong Kong í kvöld.
Lögregla notaði táragas gegn mótmælendum í Hong Kong í kvöld. AFP
Til átaka kom á milli hluta mótmælenda og lögreglu.
Til átaka kom á milli hluta mótmælenda og lögreglu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert