Biden styður ákæruferli gegn Trump

Joe Biden á kosningafundi í Rochester í New Hampshire í …
Joe Biden á kosningafundi í Rochester í New Hampshire í dag, þar sem hann sagðist styðja demókrata í fulltrúadeildinni sem ætla að kæra Trump til embættismissis vegna samskipta hans við Volodymir Zelinskí, forseta Úkraínu. AFP

Joe Biden, sem sækist eftir forsetaútnefningu Demókrataflokksins fyrir kosningarnar á næsta ári, segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi svikið þjóð sína og brotið embættiseið. Hann segist styðja demókrata í fulltrúadeildinni sem ætla að kæra Trump til embættismissis vegna samskipta hans við Volodymir Zelinskí, forseta Úkraínu. Þetta er í fyrsta skipti sem Biden tjáir sig um samskipti Trumps og Úkraínuforseta. 

„Það á að kæra hann til embættismissis til að standa vörð um stjórnarskrána okkar, lýðræðið og almenn heilindi,“ sagði Biden við stuðningsmenn sína sem hlýddu á hann á kosningafundi í New Hampshire í dag. 

Hvíta húsið greindi frá því í gær að ríkisstjórn Trumps muni ekki  með nokkr­um hætti starfa með þing­mönn­um full­trúa­deild­ar Banda­ríkjaþings í ákæru­ferl­inu forsetanum.

Trump er sakaður um að hafa þrýst á Zelenskí í sím­tali í sum­ar að láta rann­saka bæði Joe Biden og Hun­ter, son hans, vegna tengsla þess síðar­nefnda við úkraínska gas­fyr­ir­tækið Bur­isma. Trump hef­ur viður­kennt að hafa nefnt mál­efni feðganna í sím­tal­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert