Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hvatti í dag kanadíska kjósendur til að kjósa forsætisráðherrann Justin Trudeau í þingkosningum sem fram fara í næstu viku. Sagði hann Trudeau vera „árangursríkan leiðtoga“.
„Ég var stoltur að vinna með Justin Trudeau sem forseti. Hann er vinnusamur, árangursríkur leiðtogi sem tekst á við stórar áskoranir eins og loftslagsbreytingar,“ sagði Obama í Twitter-færslu.
„Heimurinn þarfnast framsækinnar leiðsagnar hans og ég vona að nágrannar okkar í norði styðji hann annað kjörtímabil.“
Trudeau svaraði fyrrverandi kollega sínum með tísti og þakkaði honum fyrir stuðninginn.
Trudeau og Obama hittust fyrst á ráðstefnu í nóvember árið 2015. Fjórum mánuðum síðar varð Trudeau fyrsti kanadíski leiðtoginn til að fara í opinbera heimsókn í Hvíta húsið í 20 ár. Báðir hafa þeir lagt áherslu á málefni á borð við heilbrigðisþjónustu, réttindi samkynhneigðra og loftslagsbreytingar.
Að því er fregnir herma hittust félagarnir síðast yfir bjór í lok maí, þegar Obama flutti erindi í Ottawa. Samband þeirra er nokkurs annars eðlis en samband Trudeau og núverandi Bandaríkjaforseta Donald Trump, en þeir virðast ekki vera í miklum metum hjá hvor öðrum.
Miðað við skoðanakannanir bendir flest til þess að næsta ríkisstjórn Kanada verði minnihlutastjórn. Frjálslyndi flokkurinn undir forystu Trudeau og helsti keppinauturinn, Íhaldsflokkurinn undir forystu Andrews Scheer, mælast með nánast jafnmikið fylgi samkvæmt niðurstöðum skoðanakannana.