Elísabet Bretadrottning mætti án eiginmanns síns, Filippusar drottningarmanns, til jólaguðsþjónustu konungsfjölskyldunnar í morgun. Hann var útskrifaður af sjúkrahúsi í London skömmu fyrir jól eftir að hafa dvalið þar í fjórar nætur og verið undir eftirliti lækna.
Konungsfjölskyldan kom að venju í guðþjónustu í kirkju heilagrar Maríu Magdalenu í Sandringham.
Talsmaður bresku konungsfjölskyldunnar sagði að Filippus hefði verið fluttur á sjúkrahús í varúðarskyni en hann er 98 ára gamall.
Í frétt AFP kemur fram að Andrés prins hafi sést á gangi við kirkjuna ásamt Karli bróður sínum en látið lítið fyrir sér fara.
Virginia Giuffre, bandarísk kona segir að barnaníðingurinn Jeffrey Epstein hafi gert hana út til Bretlands árið 2001 þar sem hún var meðal annars þvinguð til kynmaka með Andrési er hún var 17 ára gömul. Andrés hefur neitað ásökunum hennar.