Norska lögreglan girti af svæði við heimili auðjöfursins Tom Hagen í Lørenskógi í suðausturhluta Noregs í morgun. Hagen var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald fyrir helgi með bréfa- og heimsóknabanni vegna gruns um að hafa ráðið eða látið ráða eiginkonu sína, Anne-Elisabeth Hagen, af dögum á haustdögum 2018.
Fréttamenn VG fylgjast með gangi mála við heimili Hagen en þar hefur lögregla komið upp bráðabirgðaaðstöðu í hvítum tjöldum og sést hefur til fjölda lögreglumanna og leitarhunda við húsið.
Í frétt NRK er greint frá því að aðgerðir lögreglu snúi einkum að rannsókn á skólplögnum hússins.
Hvarf Anne-Elisabeth var í fyrstu rannsakað sem mannrán en eftir 18 mánaða lögreglurannsókn handtók lögregla fjárfestinn í stóraðgerð í síðustu viku, skammt frá heimili þeirra hjóna í Lørenskógi. Hagen, sem er einn auðugasti maður Noregs, er grunaður um að hafa annaðhvort stytt konu sinni aldur ellegar átt hlut að máli í vígi hennar í samstarfi við óþekkta vitorðsmenn.
Hér má fylgjast með beinni útsendingu VG.