Þrítugur karlmaður er í haldi ítölsku lögreglunnar fyrir framleiðslu og dreifingu á barnaníðsefni á netinu. Europol hafði vaktað manninn um tíma og kom ítölsku lögreglunni á sporið, að því er segir í tilkynningu Europol.
Myndskeiðin, sem voru til sölu á djúpnetinu (e. dark web), sýna hinn grunaða misnota stúlku á leikskólaaldri kynferðislega. Við ítarlega skoðun á myndskeiðinu komst ítalska lögreglan að því hvar það var tekið upp og hafði að lokum uppi á manninum í norðurhluta Ítalíu.
Með aðstoð frá sérfræðingum Europol og lögregluumdæmum víðs vegar í Evrópu tókst að bera kennsl á stúlkuna og koma henni í öruggt skjól.
Húsleit var gerð hjá manninum við handtökuna þar sem fundust yfir þúsund myndir og myndskeið af barnaníðsefni. Hans bíða nú réttarhöld.