Dómstóll í Vínarborg sakfelldi í dag fyrrverandi fjármálaráðherra austurríska ríkisins í stærsta spillingarmáli sem átt hefur sér stað í landinu frá síðari heimsstyrjöld.
Ráðherrann, Karl-Heinz Grasser, var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að misnota vald sitt .
Vitorðsmaður ráðherrans, sem var einnig svaramaður í brúðkaupi hans, játaði við réttarhöldin að hafa haft milligöngu um innherjaupplýsingar sem gerði einkafyrirtæki kleift að kaupa 60 þúsund íbúðir af ríkinu fyrir 961 milljón evra í útboði, aðeins einni milljón evra meira en sá sem bauð næsthæst.
Aðeins þremur árum síðar voru íbúðirnar metnar á tvöföldu því verði.
Grasser, sem ákvað sem ráðherra að bjóða íbúðirnar út og vissi upp á hvað hvert tilboð hljóðaði, fékk fyrir ómakið ásamt vitorðsmönnum 9,6 milljóna evra greiðslu frá fyrirtækinu.