Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings hafa óskað eftir því við demókrata í deildinni að fresta réttarhöldunum yfir fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, Donald Trump, þangað til í febrúar.
Þeir segja að með þessu fái Trump tíma til að undirbúa vörnina. Hann er ákærður fyrir brot í starfi með því að hvetja til uppreisnar eftir að stuðningsmenn hans æddu inn í þinghúsið 6. janúar.
Trump flaug til Flórída ásamt fjölskyldu á miðvikudagsmorgun og var ekki viðstaddur innsetningarathöfnina síðar um daginn.
Fulltrúadeildin samþykkti að ákæra Trump fyrir brot í starfi og því verður hann að standa fyrir máli sínu í öldungadeildinni en hlutverk deildanna er ólíkt þegar kemur að því að ákæra embættismenn fyrir brot í starfi. Þá gegnir öldungadeildin hlutverki dómstóls. Sé forseti Bandaríkjanna ákærður fyrir brot í embætti er forseti Hæstaréttar í forsæti í öldungadeildinni. Tvo þriðju hluta atkvæða viðstaddra þarf til að sakfella í slíku máli. Þrisvar sinnum hefur forseti verið ákærður fyrir brot í starfi en sýknaður í öll skiptin. Síðast var það Trump sjálfur og ef fulltrúadeildin samþykkir ákæruna er hann fyrsti forseti Bandaríkjanna sem er ákærður fyrir embættisbrot í tvígang.
Í öldungadeildinni er varaforseti Bandaríkjanna formlega forseti en í fulltrúadeildinni er deildarforseti kjörinn af þingmönnunum. Forseti öldungadeildar hefur þó ekki atkvæðisrétt nema oddaatkvæði þurfi, ólíkt forseta fulltrúadeildar sem hefur alltaf verið kjörinn þingmaður og því með atkvæðisrétt. Hvorugur gegnir þó almennt því starfi dags daglega að því er segir á Vísindavef Háskóla Íslands.