Xi Jinping, forseti Kína, mun taka þátt í rafrænni ráðstefnu um loftslagsmál ásamt Frökkum og Þjóðverjum að því er kemur fram í tilkynningu frá Peking í dag.
John Kerry, sérstakur ráðgjafi stjórnar Joe Bidens í loftslagsmálum, heimsótti nýlega Sjanghæ í tilraun til að hvetja Kínverja, sem menga mest allra þjóða, til dáða í loftslagsmálum.
Kerry er nú staddur í Kína og fundar með kínverskum kollegum sínum fram á laugardag. Um er að ræða fyrstu opinberu heimsókn frá nýrri stjórn Bandaríkjanna til Kína.
Ekki stendur til að Kerry fundi með Xi Jinping í þessari ferð en fundir hennar hafa hingað til farið fram á bak við luktar dyr.
Tilkynning frá Peking þess efnis að Xi Jinping myndi taka þátt í loftslagsráðstefnu „samkvæmt boði Emmanuel Macron, Frakklandsforseta“ kom mörgum í opna skjöldu. Ráðstefnan fer fram á föstudaginn.
Litið hefur verið á ferð Kerrys sem tækifæri stórveldanna, Kína og Bandaríkjanna, til að leggja pólitíska spennu til hliðar og einblína á mögulegt samstarf í loftslagsmálum.