Áströlsk yfirvöld hafa látið lausa úr haldi fjölskyldu flóttamanna sem dvalið hefur á Jóaleyjum frá 2018, eftir að yngra barn fjölskyldunnar var flutt til meginlands Ástralíu vegna veikinda.
Fjölskyldan fær nú að búa saman í Perth á meðan unnið er að lagalegum hliðum málsins.
Hin fjögurra ára Tharnicaa Murugappan var flutt á sjúkrahús í Perth í síðustu viku eftir að hafa fengið blóðsýkingu. Ástand Tharnicaa vakti upp áhyggjur almennings yfir velferð fjölskyldunnar.
Alex Hawke, ráðherra útlendingamála í Ástralíu, segir að fjölskyldufaðirinn Nades og eldra barn fjölskyldunnar Kopika, 6 ára, verði flutt til Perth á mánudag þar sem Tharnicaa er fyrir ásamt móður sinni Priya. Fjölskyldan hefur verið aðskilin í yfir viku.
Fjölskyldan mun búa í húsnæði á vegum stjórnvalda í úthverfi Perth undir eftirliti. Þau verða þó frjáls ferða sinna á meðan Tharnicaa fær meðferð á sjúkrahúsi. Fjölskyldan hefur undanfarin ár búið í flóttamannamiðstöð (e. detention compound) á Jólaeyjum þar sem hún var undir daglegu eftirliti öryggisvaraða.
Auk þess að hafa fengið blóðsýkingu er Tharnicaa með lungnabólgu og segir fjölskyldan að læknisaðstoð á eyjunni hafi ekki verið fullnægjandi.
Foreldrar Tharnicaa eru flóttamenn frá Sri Lanka sem komu til Ástralíu sjóleiðis fyrir tæpum áratug í leit að hæli. Þau komu sér fyrir í bænum Biloela í Queensland þar sem dætur þeirra tvær eru fæddar.
Yfirvöld fluttu fjölskylduna úr landi árið 2018. Vinir fjölskyldunnar í Biloela börðust fyrir því að hún fengi áfram að dvelja í bænum og fór málið í gegnum öll dómstig Ástralíu. Niðurstaða dómstóla var sú að ekki væri hægt að flytja fjölskylduna úr landi og brugðust yfirvöld við með því að senda hana til Jólaeyja.
Talsmenn fjölskyldunnar hafa fagnað flutningum yfir á meginlandið en kallað eftir því að fjölskyldunni verði veitt vernd og að hún fái að snúa aftur til Biloela. Síðustu daga hefur veru fjölskyldunnar á Jólaeyjum verið mótmælt í Sydney, Melbourne og víðar.
Hawke hefur sagt að þrátt fyrir flutninginn breyti hann engu um aðgang fjölskyldunnar að dvalarleyfi. Komi ekki í ljós að fjölskyldan eigi rétt á vernd verður hún beðin um að fara til Sri Lanka. Yfirvöld hafa tvisvar reynt að vísa fjölskyldunni úr landi á þeim grundvelli að hún eigi ekki rétt á vernd, en hún tilheyrir ættflokki Tamila.