Stúlkum verður bráðum leyft að hefja aftur skólagöngu í Afganistan.
Talíbanar greindu frá þessu eftir að hafa tilkynnt hverjir sitja í ríkisstjórn landsins. Verður hún eingöngu skipuð körlum.
„Við erum að ljúka við hlutina…þetta mun gerast eins fljótt og mögulegt er,” sagði Zabihullah Mujahid, talsmaður talíbana, um menntun stúlkna.