Líkamsleifar fundust við leitina

Frá yfirheyrslu lögreglunnar og Brian Laundrie fyrr í málinu.
Frá yfirheyrslu lögreglunnar og Brian Laundrie fyrr í málinu. AFP

Svo virðist sem líkamsleifar hafi fundist í dag við leitina að Brian Laundrie, fyrr­ver­andi unn­usta Gabby Pe­tito sem fannst lát­in í sept­em­ber, en hans hefur verið leitað í Flórída undanfarnar vikur.

Frá þessu greindi alríkislögreglan FBI síðdegis að staðartíma vestanhafs.

Alríkislögreglufulltrúinn Michael McPherson segir persónulega muni í eigu Laundrie einnig hafa fundist á svæðinu, sem er nærri borginni Venice í Flórída.

„Fyrr í dag fundu rannsakendur það sem virðast vera mannsleifar ásamt persónulegum munum á borð við bakpoka og stílabók í eigu Brians Laundrie,“ sagði McPherson við blaðamenn í kvöld.

Munirnir hefðu fundist á svæði sem þar til nýlega hefði verið þakið vatni. Vettvangurinn verður rannsakaður áfram næstu daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert