Assange fær leyfi til að áfrýja

AFP

Yfirréttur í London hefur samþykkt að veita Julian Assange, stofnanda Wikileaks, leyfi til að áfrýja til hæstaréttar fyrri dómi sem gaf heimild fyrir framsali hans til Bandaríkjanna. AFP-fréttastofan greinir frá. 

Í janú­ar á síðasta ári komst undirréttur að þeirri niður­stöðu að Assange yrði ekki fram­seld­ur vegna andlegrar heilsu hans og mögulegrar sjálfsvígshættu. Í desember snéri yfirréttur hins vegar við þeim dómi og heimilaði framsal Assange til Bandaríkjanna.

Lögmenn Assange ákváðu að láta reyna á það lagaákvæði fyrir dómi að hann fengi heimild til að fara með málið fyrir hæstarétt á þeim forsendum að það varðaði almannahagsmuni. Dómurinn komst í dag að þeirri niðurstöðu að það skyldi heimilað.

Tekið er fram í niðurstöðu yfirréttar að dómarar í málinu séu ekki að gefa leyfi fyrir áfrýjun, heldur fær Assange leyfi til að óska eftir því að áfrýjun hans verði tekin fyrir í hæstarétti. Það er svo hæstaréttar að taka ákvörðun um framhaldið.

Assange gæti átt yfir höfði sér allt að 175 ára fangelsisdóm í Bandaríkjunum, verði hann fundinn sekur af öllum átján ákæruliðunum á hendur honum.

Ákærurnar tengjast allar birt­ingu Wiki­leaks á um 500.000 leyniskjöl­um varðandi þátt­töku Banda­ríkj­anna í stríðsátök­un­um í Af­gan­ist­an og í Írak.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert