59 apabólusmit greindust á Spáni í dag samkvæmt tilkynningu frá heilbrigðisráðherra Spánar.
Heilbrigðisráðherra Spánar, Carolina Darias, greindi frá því í dag á blaðamannafundi að 59 hefðu greinst smitaðir af apabólu í dag með PCR-prófi en tuttugu af þeim voru staðfestir með sjúkdóminn með erfðamengiskönnun.
Að sögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (e. World Health Organization eða WHO) voru 250 smit af apabólunni staðfest á sunnudaginn. Þá höfðu sextán lönd utan Afríku tilkynnt um smit af sjúkdómnum.
Tilkynnti Darias jafnframt að Spánn sæktist nú eftir því að fá bóluefni og lyf til að meðhöndla sjúkdóminn frá Evrópusambandinu til að reyna að stöðva dreifingu sjúkdómsins.
Eins og stendur er engin meðferð gegn sjúkdómnum en sýnt hefur verið að bólusetning gegn bólusótt hefur skilað góðum árangri í 85 prósentum tilvika.