Sjö ára stúlka á meðal þeirra sem særðust

Ein sprengjanna lenti á íbúðablokk.
Ein sprengjanna lenti á íbúðablokk. AFP/Genya SAVILOV

Einn er látinn og að minnsta kosti sex særðir eftir árásir Rússa á Kænugarð snemma í morgun, þar á meðal sjö ára stúlka, að sögn Vitaly Klitchko, borgarstjóra Kænugarðs.

Að minsta kosti fjórar sprengingar heyrðist í morgunsárið og lenti ein þeirra á fjölbýlishúsi í íbúðahverfi. Fjórir voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar, þar á meðal litla stúlkan.

Skotmarkið hafi verið flugskeytaverksmiðja

Rússar fullyrða í yfirlýsingu að sprengjum hafi verið varpað á flugskeytaverksmiðju í Kænugarði. Artyom-verksmiðjan hafi verið skotmarkið og um hernaðarlega inniviði hafi verið að ræða.

Þær skemmdir sem urðu á íbúðarhúsnæði í nágrenninu hafi flugskeyti úkraínska hersins orsakað.

Fjórir voru fluttir á sjúkrahús.
Fjórir voru fluttir á sjúkrahús. AFP/Genya SAVILOV
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert