Sendir táningssyni sína í fremstu víglínu

Ramsan Kadírov á fundi með Vladimír Pútín Rússlandsforseta árið 2019.
Ramsan Kadírov á fundi með Vladimír Pútín Rússlandsforseta árið 2019. AFP

Tsétsénski leiðtoginn Ramsan Kadírov segir að synir sínir þrír, 14, 15 og 16 ára, muni brátt ferðast til Úkraínu til þess að berjast í fremstu víglínu við hlið Rússa. 

BBC greinir frá.

Kadríov er sagður mikill bandamaður Vladimírs Pútíns þrátt fyrir að hann hafi nýlega gagnrýnt skipulag rússneska hersins í Úkraínu. 

Kadírov sagði á samfélagsmiðlum í gær að feður þyrftu að kenna sonum sínum hvernig vernda ætti fjölskyldur sínar, fólk í kringum sig og föðurland sitt. 

Rússland er aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna um að koma í veg fyrir að börn undir 18 ára aldri taki beinan þátt í átökum í nafni þjóða. 

Þá flokkast beiting barna undir 15 ára aldri í stríði sem stríðsglæpur hjá Alþjóðaglæpadómstólnum. Rússar hafa þó ekki viðurkennt lögsögu hans. 

Í löngum skilaboðum á Telegram sagði Kadírov að stríðsþjálfun sona hans hafi hafist þegar þeir voru mikið yngri og að tími væri nú kominn til að þeir fengju að upplifa raunveruleg átök í stríði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert