Náinn bandamaður Xi verður forsætisráðherra

Li Qiang nýr forsætisráðherra Kína.
Li Qiang nýr forsætisráðherra Kína. AFP/Greg Baker

Li Qiang, náinn bandamaður Xi Jinping forseta Kína, hefur verið kjörinn næsti forsætisráðherra landsins. 

Li Qiang, sem var áður æðsti embættismaður Kínverska kommúnistaflokksins í Sjanghaí, tekur við embættinu af Li Keqiang. Atkvæðagreiðslan fór fram á flokksþinginu í dag og hlaut Li nánast öll 2.900 atkvæði fulltrúanna.

Li var útnefndur í embættið af bandamanni sínum og forseta Xi sem hóf í gær formlega sitt þriðja kjörtímabil í forsetastólnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert