Ófært til Seyðisfjarðar í tvo daga

Óveður er á Fjarðarheiði og hún lokuð. Myndin er úr …
Óveður er á Fjarðarheiði og hún lokuð. Myndin er úr myndasafni. mbl.is/Steinunn

Fjarðarheiði hefur nú verið lokuð frá því á miðvikudagskvöld. Leiðin milli Austurlands og Norðurlands er líka lokuð. Vegagerðin bíður átekta með að opna leiðirnar, enda er ekkert ferðaveður á þessum slóðum. Farið er að bera á mjólkurskorti á Seyðisfirði.

Ófært hefur verið til Seyðisfjarðar frá því á miðvikudags kvöld. Snjóruðningsbíll fór upp á Fjarðarheiði í gærmorgun en sneri við á brúninni enda kolbrjálað veður á heiðinni. Enn er stórhríð og sér ekki út úr augum.

Það er orðið nokkuð langt síðan að Fjarðarheiðin hefur verið lokuð samfleytt í tvo sólarhringa, en það þótti ekki fréttnæmt fyrir nokkrum árum, að sögn kunnugra. 

Norðurleiðin frá Austurlandi var illfær í gær vegna óveðurs og veðrið er enn verra í dag og alveg ófært. Stórhríð er á Jökuldalnum og eins í Skriðdal og á Héraði. 

Magnús Jóhannsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar í Fellabæ, sagði að Möðrudalsöræfin séu ófær og ófært frá Skjöldólfsstöðum og norður úr og ekkert ferðaveður. Magnús sagði að það þýði ekkert að reyna að opna vegi á meðan ekki sé ferðaveður. Komi upp neyðarástand sé að sjálfsögðu reynt að bregðast við því.

Hann sagði að ekki sé búið að afskrifa að opna Fjarðarheiði í dag, en eftir því sem líði á daginn minnki líkurnar á að af því verði. Sömu sögu er að segja af Norðurleiðinni og taldi Magnús ólíklegt að hægt verði að opna hana í dag.  Takist ekki að opna norður í dag verður það reynt í fyrramálið, þótt þá sé ekki reglulegur mokstursdagur.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert