Nýr Landspítali kynntur í dag

Frá kynningafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur um nýjan landspítala í dag.
Frá kynningafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur um nýjan landspítala í dag.

Á annað hundrað manns mættu á kynningarfund um skipulag Nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík, en hann var haldinn í Ráðhúsinu síðdegis í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsspítalanum í kvöld.

Þar segir að farið hafi verið yfir skipulag vegna stækkunar spítalans og að fundurinn hafi verið liður í lögbundnu kynningarferli á vegum Reykjavíkurborgar.

Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur sagði á fundinum að skipulagið væri orðið gott og að mikil vinna hefði verið lögð í það.

Hann benti á að uppbygging spítalans kæmi „á tíma þegar við þurfum á framkvæmdum að halda“.  Þá sagði hann fyrirhugaða uppbyggingu marka nýja tíma fyrir Reykjavík.

„Hjálmar Sveinsson, varaformaður skipulagsráðs, benti á að hagkvæmniúttekt vegna spítalauppbyggingarinnar hefði sýnt að með henni myndu sparast 2,6 milljarðar króna í rekstri spítalans árlega, eða sjö milljónir króna á dag. Það væri ábyrgðarlaust að taka ekki tillit til sterkra hagkvæmniraka,“ segir í tilkynningu spítalans.

„Hjálmar benti á að þverpólitísk eining ríkti um staðsetningu spítalans við Hringbraut, enda væru fyrir henni tvær mikilvægar forsendur. Áfram væri hægt að nýta sjúkrahúsbyggingar á staðnum og að Hringbrautarlóðin lægi betur en nokkur önnur hugsanleg lóð við umferð og samgöngumiðstöðvum í borginni.“

Að loknum framsögum voru pallborðsumræður og skoðanaskipti.

Tillaga að nýjum Landspítala samkvæmt kynningu á drögum að deiliskipulagi …
Tillaga að nýjum Landspítala samkvæmt kynningu á drögum að deiliskipulagi nýs Landspítala 30.08.2011. Ljósmynd/Nýr Landspítali
Loftmyndir - Landspítali háskólasjúkrahús
Loftmyndir - Landspítali háskólasjúkrahús Þorvaldur Örn Kristmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert