„Ef Hannes fær ekki fálkaorðuna gef ég honum mína“

Hannes Þór Halldórsson í leiknum í kvöld.
Hannes Þór Halldórsson í leiknum í kvöld. AFP

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, er hinn ánægðasti með íslenska landsliðið eftir sigurinn sögulega gegn Englandi í kvöld. Þó ekki síst frammistöðu Hannesar Þórs Halldórssonar markvarðar.

„Mér er orða vant. Þetta er algjörlega stórkostlegt,“ skrifar hann á Facebook-síðu sína eftir leik og bætir við: „Ef Hannes fær ekki fálkaorðuna gef ég honum mína.“

Ísland mætir gestgjöfunum í Frakklandi í átta liða úrslitum á þjóðarleikvangi Frakka í París á sunnudaginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert