Íbúar í nágrenninu loki gluggum

Slökkviliðsmenn á vettvangi í gær.
Slökkviliðsmenn á vettvangi í gær. mbl.is/Eggert

Vegna óhagstæðrar veðurspár telur Heilbrigðiseftirlit Suðurlands rétt að íbúar í nágrenni rústanna að Kirkjuvegi 18 á Selfossi hafi glugga á húsnæði sínu lokaða og að gangandi umferð verði sem minnst um nágrennið meðan rústirnar hafa ekki verið fjarlægðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands.

Ráðleggingarnar eru settar fram í öryggisskyni í ljósi þess sem áður hefur komið fram um asbest í klæðningu hússins og önnur efni sem geta farið af stað ef vind hreyfir að ráði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert