Lið Menntaskólans á Akureyri sigraði lið Verzlunarskólans í Gettu betur í kvöld, með 29 stigum gegn 22. Er MA þar með komið í undanúrslit ásamt liði Menntaskólans í Reykjavík.
Liðin voru jöfn að loknum hraðaspurningum, en MA náði þó forskoti á Verzlunarskólann í bjölluspurningunum þó að aldrei munaði miklu á liðunum.
Í næstu viku eigast svo við Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, sem var sigurvegari Gettu betur í fyrra, og Fjölbrautaskóli Suðurlands.