Áætla 19% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda

Þær aðgerðir sem gert er ráð fyrir að skili mestum …
Þær aðgerðir sem gert er ráð fyrir að skili mestum árangri samkvæmt áætlun stjórnvalda sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda snúa að rafbílavæðingu. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Íslensk stjórnvöld áætla að losun frá orku dragist saman um 23%, losun frá iðnaði (fyrir utan stóriðju) aukist um 17%, losun frá landbúnaði aukist um 5% og losun frá úrgangi dragist saman um 28% til ársins 2030 miðað við tölur frá 2005.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu sem Íslandi ber að skila til Evrópusambandsins um hvaða stefnur og aðgerðir hafa verið samþykktar eða áætlaðar sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum Íslands í loftslagsmálum, ásamt því að framreikna út frá þeim losun fram til ársins 2035.

Skýrslu um áætlaðan samdrátt á losun skilað í fyrsta sinn

Fram kemur í frétt á vef Umhverfisstofnunar að stofnunin hefur nú í fyrsta sinn skilað slíkri skýrslu en hún mun framvegis verða lykilverkfæri í því að meta jafnóðum hverju fyrirhugaðar aðgerðir skila í samdrætti í losun. Upplýsingunum í skýrslunni verður einnig skilað til Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC) í tvíæringsskýrslu (Biennial Report) í lok árs.

Skýrslan bregður upp sviðsmynd sem sýnir mögulegan samdrátt í losun árið 2035 út frá þeim aðgerðum sem þegar hafa verið tölusettar og kostnaðarmetnar. Í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum var hluti af 6 af 34 aðgerðum metinn til samdráttar í losun miðað við þessar forsendur.  Framreikningar sýna að það muni nást 19% samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda til ársins 2030 miðað við árið 2005 og 28% samdráttur muni nást til ársins 2035 miðað við árið 2005.

Þær aðgerðir sem gert er ráð fyrir að skili mestum árangri samkvæmt þessum framreikningum snúa að rafbílavæðingu. Við þá útreikninga var m.a byggt á spá Orkuveitu Reykjavíkur um rafbílavæðingu frá 2018 en spáin var gerð áður en gildandi aðgerðaáætlun stjórnvalda kom út. Áætlaðan ávinning af aðgerðum sem er að finna í aðgerðaáætlun var einungis hægt að framreikna að takmörkuðu leyti.

Hér má lesa nánar um stefnur og aðgerðir stjórnvalda sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert