Alelda bíll í nágrenni Víkur

Bíllinn varð fljótt alelda.
Bíllinn varð fljótt alelda. Ljósmynd/Facebook-síða lögreglunnar á Suðurlandi

Lögreglunni á Suðurlandi og slökkviliði barst tilkynning um eld í fólksbíl á þjóðvegi 1 skammt austan við Vík í Mýrdal laust fyrir klukkan þrjú í nótt.

Lögregla greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni og segir bílinn fljótt hafa orðið alelda.

Tveir voru í bílnum þegar eldurinn kom upp, ökumaður og farþegi og sluppu þeir báðir ómeiddir. Bíllinn er hins vegar gjörónýtur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert