„Fjarskiptamálin eru svo sér kapítuli“

Hluti ríkisstjórnarinnar kom á Dalvík nú rétt í þessu.
Hluti ríkisstjórnarinnar kom á Dalvík nú rétt í þessu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fimm ráðherrar úr ríkisstjórn Íslands komu á Dalvík núna rétt í þessu til að kynna sér aðstæður eftir ofsaveðrið í vikunni og rafmagns- og fjarskiptaleysi í framhaldi af því.

Ráðherrarnir eru þau Katrín Jakobsdóttir, Kristján Þór Júlíusson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, tók á móti ráðherrunum í ráðhúsinu, en fundurinn var haldinn við kertaljós. Sagði Katrín sveitarstjóri það táknrænt í ljósi rafmagnsleysisins, þótt rafmagn væri nú komið á bæinn.

Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, ávarpaði ráðherra í byrjun fundarins og …
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, ávarpaði ráðherra í byrjun fundarins og fór yfir stöðuna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fór hún í framhaldinu yfir stöðu mála. „Staðan fer batnandi,“ sagði hún og þakkaði sérstaklega fyrir komu Þórs í gær, en hann framleiðir nú rafmagn fyrir stóran hluta bæjarins. Sagði hún það hafa verið tilfinningaþrungna stund að sjá skipið sigla inn í höfnina á hádegi í gær og vita að rafmagn færi að komast á aftur.

Enn eru þó köld svæði að sögn Katrínar, en það á við í Skíðadal og Svarfaðardal, auk þess sem einhver hús eru enn án rafmagns norðan við Dalvík. Hafa nokkur hús á þessu svæði verið rýmd, en miklir kuldar eru fram undan.

Hluti ríkisstjórnarinnar mætir í ráðhúsið á Dalvík.
Hluti ríkisstjórnarinnar mætir í ráðhúsið á Dalvík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Fjarskiptamálin eru svo sér kapítuli,“ sagði Katrín og sagði að það hefði verið hræðilegt að upplifa að hafa ekkert samband, hvorki síma- né útvarpssamband og verið klippt frá umheiminum.

Þá sagði hún jafnframt allt atvinnulíf hafa verið stopp í sveitarfélaginu undanfarna daga.

Ráðherrarnir munu í kjölfar fundarins, með sveitarstjóra og fleiri viðbragðsaðilum og stjórnendum sveitarfélagsins, skoða raftengingu Þórs, kynna sér starf björgunarsveitarinnar og skoða þær skemmdir sem urðu á línum Landsnets og kynna sér vinnu við að koma rafmagninu aftur á Dalvíkurlínu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert