Vill banna Þórhildi Sunnu að koma til Rússlands

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forseti rússneska þingsins vill koma í veg fyrir að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, komist til landsins. Hefur hann rætt málið við forseta Alþingis. Er ástæðan skýrsla þingkonunnar um stöðu mála á Krímskaga. 

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Þórhildur er formaður laga- og mannréttindanefndar Evrópuráðsins. Hún flutti framsögu um skýrsluna í lok júni en þar er þungum áhyggjum af stöðu Krímtatara lýst. Þingið hefur samþykkt skýrslu Þórhildar og mun þingið fara fram á rannsókn á „meintum morðum, mann­ránum, pyntingum og annarri ó­mann­úð­legri með­ferð sem Krím­tatarar hafa mátt sæta“.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert