Gígja sækist eftir 4. sæti í Reykjanesbæ

Gígja sækist eftir sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.
Gígja sækist eftir sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Ljósmynd/Aðsend

Gígja Sigríður Guðjónsdóttir býður sig fram í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ sem fer fram 26. febrúar næstkomandi.

Gígja er 32 ára gömul, uppeldis- og menntunarfræðingur, og starfar sem flugfreyja hjá Icelandair, ásamt því að deila mataruppskriftum á vef Gott í matinn. Hún er gift Ásgeiri Elvari Garðarssyni en þau eiga tvö börn á leikskólaaldri.

„Ég hef fylgst vel með bæjarmálunum í Reykjanesbæ frá því ég flutti hingað fyrir meira en áratug og var á lista Sjálfstæðisflokksins í sveitastjórnakosningunum árið 2014. Ég hef tekið virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins, sat í stjórn Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ um tíma og var í 10. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir síðustu alþingiskosningar,“ segir Gígja.

Sem móðir tveggja barna á leikskólaaldri segist hún vel þekkja raunveruleika ungs fjölskyldufólks og mun leggja mikla áherslu á málefni fjölskyldunnar, leikskólamál og betri heilsugæslu. Eflingu heilsugæslunnar þurfi að setja í forgang í samstarfi ríkis og sveitarfélagsins, þar sem þjónustan við íbúana verði útgangspunkturinn og miðuð að þeirra þörfum.

„Ég vil að í Reykjanesbæ verði hægt að tryggja börnum öruggt pláss í dagvistun að loknu fæðingarorlofi og að settir verði á fót ungbarnaleikskólar í bæjarfélaginu,“ segir Gígja.

Hún bendir á að Reykjanesbær sé ört vaxandi bæjarfélag og hafi tækifæri til að verða framúrskarandi áöllum sviðum, en til þess þurfi margt að fara saman. bæði ímynd samfélagsins og aðlaðandi rekstarumhverfi.

„Hér er gott aðvera og hér vil ég búa. Ég nýt þess að takast á við áskoranir og ég er sannfærð um að ég hafi margt til málanna að leggja til að gera Reykjanesbæ að enn betri bæ til að búa í.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert