Á annað hundrað fyrirtæki sýna í Höllinni

Iðnaðarsýningin 2023 verður opnuð í Laugardalshöll á morgun, fimmtudag.
Iðnaðarsýningin 2023 verður opnuð í Laugardalshöll á morgun, fimmtudag. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Iðnaðarsýningin 2023 verður opnuð í Laugardalshöll á morgun, fimmtudag. Hún stendur til laugardags. 

Á annað hundrað fyrirtæki kynna vörur og þjónustu á sýningunni. Hún er haldin af Ritsýn sf. sem hefur í 26 ár sérhæft sig í fagsýningum. Má þar nefna sjávarútvegs-, landbúnaðar-, heilsu- og stóreldhúsasýningar.

Fram kemur í tilkynningu frá Ritsýn að Samtök iðnaðarins séu samstarfsaðili sýningarinnar. Innan samtakanna eru um 1.400 fyrirtæki er sýni stærð iðnaðargeirans hér á landi. Samkvæmt hagtölum skapi hann rúmlega fimmtung landsframleiðslunnar.

Á iðnaðarsýningunni verði meðal annars lögð áhersla á að kynna mannvirkjagerð, orku, innviði, vistvænar lausnir og hönnun. Hún eigi að höfða bæði til fagmanna og almennings.

Sýningin verður opin frá klukkan 14 til 19 fimmtudag, klukkan 10 til 18 föstudag og 10 til 17 á laugardag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert