Mikið álag á bráðamóttökunni í Fossvogi

Forgangsraðað er eftir bráðleika.
Forgangsraðað er eftir bráðleika. mbl.is/Jón Pétur

Mikið álag er á bráðamóttökunni í Fossvogi þessa stundina og og margir sem bíða eftir þjónustu. Landspítalinn biðlar til almennings að hringja fyrst í síma 1700 eða leita upplýsinga á netspjalli Heilsuveru áður en leitað er þangað.

Þetta tilkynnir Landspítalinn í færslu á Facebook en þar segir að á bráðamóttökunni sé forgangsraðað eftir bráðleika.

Við aðstæður eins og nú eru getur fólk sem ekki er í bráðri hættu því þurft að bíða lengur en annars eftir þjónustu. Ef því verður mögulega við komið er þess vegna æskilegt að reyna að leita annað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert