Vantrauststillagan formlega afturkölluð

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. mbl.is/Árni Sæberg

Vantrauststillaga Flokks fólksins, á hendur Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra, hefur nú verið afturkölluð.

Er þetta gert í kjölfar þess að Svandís tilkynnti um klukkan 15 í dag, þegar þing kom aftur saman, að hún hefði í morgun fengið staðfesta greiningu á brjóstakrabbameini. Af þeim sökum hygðist hún taka leyfi frá störfum.

Enginn bragur á því

Inga Sæ­land, formaður Flokks fólks­ins, brást við tíðindunum í samtali við mbl.is og kvað telja það líklegt að tillagan yrði dregin til baka.

„Það er eng­inn brag­ur á því að leggja fram van­traust á ein­stak­ling sem ekki er hér til þess að verja sig sjálf­ur,“ sagði Inga.

„Þetta eru slá­andi frétt­ir og við send­um henni bata­kveðjur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert