Sigríður Dögg áfram formaður Blaðamannafélagsins

Sigríður Dögg verður áfram formaður Blaðamannafélags Íslands.
Sigríður Dögg verður áfram formaður Blaðamannafélags Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, er sjálfkjörin í embætti formanns félagsins til næstu tveggja ára. 

Þetta staðfestir Sigríður Dögg í samtali við mbl.is en framboðsfrestur rann út í gær. 

Aðalfundur BÍ fer fram þann 16. apríl og verður þá kosið í ýmsar stjórnir og nefndir félagsins. 

Aðspurð segir Sigríður Dögg að fjölmargir hafi þegar gefið kost á sér í þau embætti og að kjörstjórn vinni nú úr þeim framboðum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert