Halla Hrund á toppnum í þremur könnunum af fjórum

Halla Hrund Logadóttir.
Halla Hrund Logadóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Halla Hrund Logadóttir fær mest fylgi frambjóðenda til embættis forseta Íslands samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Maskínu.

Halla Hrund mælist með 29,4 prósent fylgi og eykur fylgi sitt um þrjú prósentustig frá síðustu könnun Maskínu. Halla Hrund mældist einnig með mesta fylgi í Þjóðarpúlsi Gallup sem RÚV hefur birt

Katrín Jakobsdóttir mælist með 26,8 prósenta fylgi og er ekki marktækur munur á fylgi Höllu Hrundar og Katrínar.

Baldur Þórhallsson mælist með 19,9 prósent fylgi og Jón Gnarr mælist með 12,9 prósent fylgi en hann var með 15,2 prósenta fylgi í síðustu könnun. Aðrir frambjóðendur mælast með undir fimm prósenta fylgi.

Könnun Maskínu fór fram dagana 22. apríl til 3. maí og voru svarendur 1.236 talsins.

Í grafinu hér á neðan má sjá fylgi fjögurra efstu í þeim fjórum könnunum sem hafa komið út í vikunni.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert