Hvað ætlar Jón Gnarr að gera á Bessastöðum?

Frosti Logason, Jón Gnarr og Sanna Magdalena eru gestir Stefáns …
Frosti Logason, Jón Gnarr og Sanna Magdalena eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum. Samsett mynd

Jón Gnarr fosetaframbjóðandi situr fyrir svörum í næsta þætti af Spursmálum sem verður sýndur á mbl.is klukkan 14 í dag.

Spurs­mál hafa vakið tölu­verða at­hygli í sam­fé­lag­inu und­an­farið fyr­ir bein­skeytt­ar umræður um for­setafram­bjóðend­ur og kosn­inga­bar­áttu þeirra. Í Spurs­mál­um er knúið á um svör fram­bjóðenda við erfiðum spurn­ing­um sem eiga er­indi við kjós­end­ur og sit­ur Jón Gn­arr fyr­ir svörum í þætti dagsins.

Krefjandi spurningar og alvöru umræður

Líkt og í fyrri þátt­um Spurs­mála verður krefj­andi spurn­ing­um beint að Jóni um hvernig hann hyggst fara með vald for­seta­embætt­is­ins verði hann kjör­inn.

Auk Jóns mæta þau Frosti Logason fjölmiðlamaður og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi í settið og rýna helstu fréttir líðandi viku.

Vertu viss um að fylgjast með Spursmálum hér á mbl.is alla föstudaga klukkan 14. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert