Aukið fjármagn til nautgripa- og sauðfjárbænda

Fjárfestingarstuðningur er veittur vegna framkvæmda sem stuðla að hagkvæmari búskaparháttum.
Fjárfestingarstuðningur er veittur vegna framkvæmda sem stuðla að hagkvæmari búskaparháttum. mbl.is/Eggert

Heildarkostnaður við fjárfestingar naugripabænda vegna framkvæmda á þessu ári nemur tæpum fimm milljörðum króna. Heildarkostnaður við fjárfestingar sauðfjárbænda er 2,2 milljarðar króna. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælaráðuneytinu, sem hefur lokið yfirferð umsókna um fjárfestingastuðning í nautgriparækt og sauðfjárrækt vegna framkvæmda á þessu ári.

Fjárfestingarstuðningur er veittur vegna framkvæmda sem stuðla að hagkvæmari búskaparháttum, bættum aðbúnaði gripa og aukinni umhverfisvernd, að því er segir í tilkynningunni.

138 umsóknir í nautgriparækt

138 umsóknir bárust í nautgriparækt, þar af 62 vegna nýframkvæmda og 76 vegna endurbóta á byggingum. Heildarkostnaður við fjárfestingar nautgripabænda vegna framkvæmda á árinu 2024 er tæpir fimm milljarðar króna.

Til úthlutunar eru samtals 268 milljónir króna og styrkhlutfall reiknast um 5,4% af heildarfjárfestingakostnaði.

Fjárfestingastuðningur við sauðfjárbændur hefur aukist samkvæmt nýju samkomulagi.
Fjárfestingastuðningur við sauðfjárbændur hefur aukist samkvæmt nýju samkomulagi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Auknir fjármunir til sauðfjárbænda

Það bárust 135 umsóknir í sauðfjárrækt; 38 vegna nýframkvæmda og 97 vegna endurbóta á byggingum. Heildarkostnaður við fjárfestingar sauðfjárbænda er 2,2 milljarðar króna. 

Auknir fjármunir eru til úthlutunar til sauðfjárbænda vegna nýgerðs samkomulags um endurskoðun á sauðfjárræktarsamningi, eða samtals 238 milljónir króna, og reiknast styrkhlutfall um 11% af heildarfjárfestingarkostnaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert