Kjúklingataco sem ketó-istar elska

Kristinn Magnússon

Hver elskar ekki ketó? Það á borða smjör og beikon og allan hinn skemmtilega matinn sem svo erfitt er að lifa án. Þó fyrst og fremst smjör og rjóma og þessi uppskrift er einmitt algjör ketó-rokkstjarna ef svo má að orði komast um uppskrift. 

Það er Aníta Ösp Ingólfsdóttir - matreiðslumeistari og yfirkokkur á RÍÓ Reykjavík sem á heiðurinn að þessari uppskrift. 

Kjúklinga „taco“ í salatblaði

  • 250 g kjúklingalæri
  • 100 g hvítkál
  • 50 g rauðkál
  • 10 g smjör
  • 1½ dl rjómi
  • salt
  • lambhagasalat
  • fetaostur
  • tómatar

Aðferð: 

  1. Kjúklingalærin eru grilluð og krydduð með salti og pipar.
  2. Hvítkálið og rauðkálið er steikt upp úr smjöri, síðan er rjómanum bætt út á og leyft að sjóða vel niður, þá er það smakkað til með salti.
  3. Hvítkálinu er raðað í lambhagasalatsblöð, kjúklingurinn fer síðan ofan á sem og rifinn fetaostur og skornir tómatar.

Jalapenó mayo

  • 250 g hellmanns mayo
  • 25 g jalapeno í dós
  • salt

Jalapenóið er maukað, síðan er því hrært út í mayoið. Smakkað til með salti. 

Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert