Fáránlega góður fitness kjúklingur

mbl.is/Íris Blöndahl

Ef þið teljið ykkur í vandræðum með hvað hafa skuli í kvöldmat þá eru þau vandræði formlega á enda því þessi dásemdarréttur er bæði bragðgóður og svo fáránlega hollur að fitness drottningar geta borðað hann í öll mál.

Það er Íris Blöndahl á GRGS sem á þessa uppskrift en hún segir að rétturinn hafi alltaf verið kallaður fitness kjúklingur á hennar heimili því hann sé svo hollur og góður. „Hann er mjög oft hafður á mánudags kvöldum og er góður til þess að byrja holla viku eftir helgarfríið. Ég vel að nota kjúklingalæri í stað þess að nota bringur því kjötið verður miklu mýkra og bragðbetra. Það er ekki aftur snúið í bringur eftir að maður prófar lærin. Ég bar þetta svo fram með ofnbökuðu brokkolí og gulrótum, salati og Aprókósupestó.“

Fáránlega góður fitness kjúklingur

  • 1 poki úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose Poultry
  • 4 hvítlauksrif
  • 1 sm engifer rót
  • 1 lime

Aðferð:

  1. Skerið kjúklingalærin í munnbita og setjið í skál eða fat.
  2. Rífið engifer rótina á rifjárni og setjið í sér skál.
  3. Kreistið hvítlauksrifin ofan í sömu skál.
  4. Bætið safanum af einni límónu við og hrærið saman.
  5. Þessu er öllu helt yfir kjúklinginn og leyft að bíða í 30 mínútur.
  6. Salt og pipar sett yfir kjúklinginn eftir smekk.
  7. Kjúklingurinn er nú steiktur á pönnu í 14 mínútur eða þar til hann er full eldaður .
  8. Ég bar hann fram með ofnbökuðu grænmeti, salati og Apríkósupestó.

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...

mbl.is/Íris Blöndahl
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert