Löðrandi lúxus-ribeyesteik sem ærir óstöðuga

Girnileg ribeye steik með æðislegu hvítlauks-tómatsmjöri.
Girnileg ribeye steik með æðislegu hvítlauks-tómatsmjöri. mbl.is/Snorri Guðmundsson

Hér býður Snorri Guðmundsson, sem heldur úti hinni frábæru síðu Matur & myndir, okkur upp á safaríka ribeyesteik með hvítlaukstómatsmjöri og parmesankartöflum. Hann segir að stjarnan í þessari uppskrift sé heimagerða smjörið sem henti vel með kjöti og kjúklingi og sé einnig frábært á baguettebrauðsneiðar sem meðlæti með góðu pasta.

Ribeyesteik að hætti Snorra

(fyrir 2)

  • 2x 250 g ribeyesteikur
  • 50 g ósaltað smjör, við stofuhita
  • 15 g tómatpúrra
  • 1 hvítlauksrif
  • 400 g kartöflur
  • 25 g parmesanostur
  • 4 g steinselja
  • 70 g romainesalat
  • 5 kirsuberjatómatar
  • ¼ lítill rauðlaukur
  • 1 msk. balsamedik
  • 2 msk. ólífuolía
  • ½ tsk. hunang

Aðferð:

  1. Stappið saman tómatpúrru, 50 g smjör og hvítlauk. Smakkið til með salti og rúllið tómatsmjörinu svo þétt inn í plastfilmu. Geymið í kæli.
  2. Takið kjötið úr kæli 1 klst áður en á að elda það.
  3. Stillið ofn á 180°C með blæstri.
  4. Skerið kartöflurnar í bita og veltið upp úr olíu, salti og pipar. Dreifið kartöflunum yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í 30-35 mín. eða þar til kartöflurnar eru orðnar fallega gylltar. Færið kartöflurnar í skál, saxið steinselju og rífið um 10 g af parmesanosti og hrærið saman við kartöflurnar.
  5. Skerið eða rífið romainesalat eftir smekk. Skerið rauðlauk í þunnar sneiðar, skerið tómata í bita og notið skrælara eða ostaskera til þess að gera þunnar sneiðar úr restinni af parmesanostinum.
  6. Pískið saman balsamedik, ólífuolíu, hunang og smá salt.
  7. Setjið grænmetið í skál og veltið upp úr salatdressingunni rétt áður en maturinn er borinn fram.
  8. Nuddið nautakjötið með olíu og saltið og piprið rausnarlega. Hitið pönnu þar til hún er orðin mjög heit. Bætið smá olíu út á pönnuna og því næst kjötinu. Látið steikurnar liggja óhreyfðar í 2 mín. á annarri hliðinni, snúið þeim og látið liggja óhreyfðar í aðrar 2 mín. Bætið smjörklípu út á pönnuna og steikið steikurnar áfram í um 2 mín. (6 mín. samtals) fyrir medium rare-steikingu en snúið þeim á um 30 sek. fresti.
  9. Skerið tómatsmjörið í skífur og berið fram með steikunum.

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...

Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert