Kjúklingarétturinn sem þú þarft að prófa

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Þessi uppskrift er úr smiðju uppskriftadrottningarinnar Berglindar Guðmunds á GRGS.is og hér er kjúklingur í aðalhlutverki.

Við erum að tala um dýrindis kjúkling í appelsínusósu sem ætti að hitta í mark á flestum bæjum.

Kjúklingabringur í appelsínusósu

Fyrir 4

  • 4 kjúklingabringur
  • salt og pipar
  • ólífuolía
  • 1 dl hvítvín (t.d. Stemmari)
  • 1 dl kjúklingasoð
  • 1 1/2 dl nýpressaður appelsínusafi
  • 2 msk. balsamik edik
  • 1 tsk. fljótandi hunang
  • 1 msk. smjör

Leiðbeiningar

  1. Kryddið kjúklingabringur með salti og pipar.
  2. Brúnið kjúklingabringurnar á báðum hliðum á heitri pönnu um 3 mín á hvorri hlið.
  3. Látið í ofnfast mót og eldið við 180°C í 30-40 mínútur eða þar til þær eru fulleldaðar.
  4. Látið standa í 5 mínútur undir álpappír áður en skorð er í þær.
  5. Appelsínusósa: Látið kjúklingasoð, hvítvín og appelsínusafa á sömu pönnu og þið steiktuð kjúklinginn á. Hitið að suðu.
  6. Smakkið til með balsamik ediki, hunangi, salti og pipar.
  7. Þegar sósan hefur aðeins þykknað bætið þá smjöri saman við og slökkvið á hitanum.
  8. Berið kjúklinginn fram með appelsínusósu og meðlæti að eigin vali.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert