4 heilbrigðar leiðir að þyngdartapi

Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi.
Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi.

„Ef þú vilt vita leyndarmálið til að léttast náttúrulega og viðhalda þyngdartapinu, þá er þetta grein fyrir þig. Ég styðst við þessar 4 einföldu leiðir til að koma í veg fyrir þyngdaraukningu og hjálpa mér að viðhalda sátt í eigin skinni,“ segir Júlía Magnúsdóttir, heilsumarkþjálfi og eigandi Lifðu til fulls, í sínum nýjasta pistli: 

1. Borðaðu þegar þú finnur fyrir hungri og hættu þegar þú hefur fengið nóg.

Kennari sem kenndi mér næringarfræði sagði alltaf að hungur væri nákvæmur mælikvarði á þarfir líkamans. Þetta er algjörlega satt. Suma daga er maður mjög svangur og aðra finnur maður ekki jafn mikið fyrir hungri. Það er nauðsynlegt að hlusta eftir þessum þörfum. 

Ég reyni því eftir fremsta megni að nota núvitund þegar ég borða og stoppa þegar ég er södd en ekki að springa. Auðvitað koma skipti sem ég treð aðeins of mikið í mig (kemur fyrir okkur öll!) en ég reyni að huga vel að þessu enda finn ég muninn sem það hefur á svefn, orku og meltingu til hins betra.

2. Veldu máltíðir, ekki nart.

Það gæti komið þér á óvart en flesta daga narta ég ekki og borða engin millimál. Fyrir nokkru stóð ég sjálfa mig að því að vera stanslaust að narta heima við, sérstaklega ef það var einhverskonar álagstímabil og mikið að gera. Síðan ég hætti þessu finnst mér ég ná betur að hlusta á líkamann og finna hvort ég sé í alvöru svöng. Þegar ég ferðast fæ ég mér auðvitað eitthvað eins og próteinstykki, hnetur eða kakónibbur en þá er rútínan og matmálstímar oft breytilegri.

Það þarf alls ekki að vera að þetta eigi við þig og kannski þarft þú á millimálum að halda. Ég hvet þig til að íhuga þetta og sjá hvort henti þér að borða stærri máltíðir sjaldnar eða borða léttar og oftar.

3. Ekki leyfa svindlinu að eyðileggja.

Þetta er svo ótrúlega mikilvægt atriði. Mistök sem alltof margir gera er að hafa „allt eða ekkert“ hugarfarið. 

Það getur lýst sér þannig að ef þú færð þér eitt nammi einhvern daginn finnst þér þú vera búin að eyðileggja þann dag, brýtur þig niður og ákveður að það skipti ekki máli þó að þú troðir þig núna út, þessi eini sælgætismoli eyðilagði hvort sem er bindindið. 

Eða svona: þú ákveður að taka mataræðið í gegn, tekur út allt sætt, allt brauð og í raun allt sem þér finnst gott, en kemur ekki með neitt í staðinn. 

Þetta eru ekki raunhæfar nálganir og ekki eitthvað sem þú munt endast í, þannig er það bara. Við þurfum að taka þetta í skrefum og gera raunhæfar breytingar, sem við sjáum fram á að ná að halda við. Sama hversu litlar þessar breytingar eru, bara það t.d. að sleppa gosi getur gert helling! 

4. Ekki borða tilfinningar þínar.

Fjórða og trúlega mikilvægasta reglan er að láta ekki tilfinningarnar stjórna mataræðinu. Það mun hvorki láta okkur vera södd, né líða betur. 

Þegar mér líður illa eða er pirruð reyni ég að leysa úr því áður en ég borða. Ég vil frekar bíða aðeins og ná að njóta máltíðarinnar, heldur en að borða á röngum forsendum og líða jafnvel enn verr eftir á. Ég þori nánast að lofa því að þessi regla gæti breytt lífi þínu. 

HÉR getur þú lesið meira efni frá Júlíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál