7 einfaldir hlutir sem slá á sykurlöngun

Ert þú þessi týpa sem langar stöðugt í sætindi?
Ert þú þessi týpa sem langar stöðugt í sætindi? mbl.is/Unsplash

„Hver vill ekki læra um auðveldar leiðir sem slá á sykurlöngunina? Hér er listi yfir einfalda hluti sem þú getur byrjað að innleiða í þína daglegu rútínu strax í dag og kvatt þar með sykurpúkann,“ segir Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi hjá Lifðu til fulls í sínum nýjasta pistli: 

Fáðu þér eina matskeið af kókosolíu 

Kókosolían er frábær fyrir meltinguna, heilastarfsemi og hjálpar að slá á sykurlöngun. Fitan í henni er einstök þar sem hún inniheldur mestmegnis miðlungs fitusýruhlekki, eða MCT, sem veitir góða seddu nær samstundis sem þar af leiðandi hjálpar gegn sætindaþörf. Mér finnst skipta máli að velja hágæðakókosolíu upp á bæði bragð og næringu.

Prófaðu að fá  þér eina matskeið af kókosolíu þegar sykurlöngunin kallar.

Bættu við sætleika náttúrunnar

Það er fullt af öðrum valkostum en sykur þegar mann langar í eithvað sætt og margir þeirra eru alveg frábærir kostir fyrir heilsuna! Lífrænt dökkt kakó er ein andoxunarríkasta fæða í heiminum. Chai te, kanil, vanilluduft, kókosolía eða lakkrísrót eru æðislegar leiðir til að bæta við meiri sætleika í lífið án þess að nota sykur eða frúktósa.

Bættu sætum kryddum náttúrunnar við í daginn þinn.

mbl.is/Unsplash

Skiptu út sykri fyrir fitu

Skortur á fitu getur verið ástæða sykurlöngunar hjá þér. Holl fita gefur seddu sem og jafnar blóðsykur. Avókadó og kókosolía eru frábærir fituforðar. Aðrar hollar fitur eru t.d. hörfræolía, omega-3 úr fiski eða jurtaríkinu, möndlusmjör,  tahini (sesammauk) og kaldpressuð ólífuolía.

Bættu við hollri fitu í hverja máltíð dagsins.

Borðaðu meira grænt

Grænt salat eins og grænkál, klettasalat, spínat eða lambhagasalat eru æðisleg fæða gegn sykurlöngun þar sem beiska bragðið sem það gefur hjálpar að endurstilla bragðlaukana og venja þannig líkamann af sykri. Ekki sakar að grænt salat gefur orku og dregur fram þennan náttúrulega ljóma!

Fáðu þér lúku af grænu salati í búst drykkinn eða á matardiskinn.

Bættu við magnesíum

Skortur á magnesíum getur leitt til þess að við sækjum í sykurinn. Ef þú ert oft undir miklu álagi og streitu eða stundar mikla líkamsrækt getur það bent til að líkaminn þurfi magnesíum. Magnesíum má finna í fæðutegundum eins og dökku kakói, kakónibbum, kasjúhnetum, klettasalati, grænkáli, tahini (sesammauki).

Borðaðu magnesíumríka fæðu.

Drekktu stórt vatnsglas

Oft getur sykurlöngun stafað af vatnsskorti. Vatn hefur það hlutverk að færa næringarefni milli frumna, flytja úrgang og styðja við almenna virkni líkamans. Bættu sítrónu- eða límónusafa, myntu eða ferskum ávöxtum út í vatnið til tilbreytingar.

Fáðu þér stórt glas af vatni næst þegar sykurlöngun kemur upp.

Sofðu meira

Skortur á svefni er algeng ástæða fyrir sykurlöngun. Vertu viss um að sofa 7-8 tíma á nóttu og sinna góðri kvöldrútínu sem hjálpar þér að sofna stuttu eftir að þú leggst á koddann.

Sofðu klukkutíma lengur.

Viltu læra fleiri ráð sem hjálpa til við að vinna gegn sykurlöngun ásamt því að veita þér aukna orku og vellíðan? 

Skráðu þig á ókeypis fyrirlestur sem ég er að halda í beinni á netinu þriðjudaginn 21. janúar kl. 20:00. Með því að koma færðu einföld og sannreynd skref sem þú getur strax hafist handa á, uppskrift sem dregur úr sykurlöngun, próf sem tekur mið af heilsunni, næstu skref í breyttum lífsstíl og margt margt fleira! Ég mæli með að tryggja þér pláss HÉR strax í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál