Æfing sem hjálpar þér að elska líkama þinn

Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi.
Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi. Ljósmynd/Aðsend

„Í síðustu viku þegar ég var í Kaliforníu átti ég spjall við vinkonu mína þar sem hún sagði mér frá glímu sinni við líkamsímyndina og að hún ætti erfitt með að horfast í augun við líkama sinn í speglinum,“ segir Júlía Magnús­dótt­ir, heil­su­markþjálfi hjá Lifðu til fulls, í sín­um nýj­asta pistli: 

Hún horfði í spegilinn og hugsaði með sér „ohh ég er svo feit“, „afhverju er ég með fitu í handarkrikanum“ — þú kannski þekkir þetta líka enda held ég að flestar konur hafi einhverntímann hugsað eitthvað svona.

Neikvæðar hugsanir um líkamann leiða til þessa að við verðum pirruð í skapi og leið. Slíkar hugsanir gera okkur það einnig 10 sinnum erfiðara að ná árangri því hugurinn er fastur í vandamálinu en ekki lausninni. Enda hafa allar hugsanir áhrif á undirmeðvitund okkar og stýrir hún öllu sem við gerum. Ef við segjum við okkur að við séum feit sem dæmi, þá fer undirmeðvitundin ósjálfrátt í það að láta það gerast, t.d með því að við borðum meira en við ættum eða höldum fast í ósiði sem við vitum að eru ekki að þjóna okkur.

Ég deildi þessari einfaldri æfingu með vinkonu minni og hjálpar hún okkur að horfast í augu við líkama okkar, elska hann alveg eins og hann er og þannig byggja upp jákvæða sjálfsmynd. Þessi æfing heitir þurrburstun og tekur ekki nema 2 mín. og gott að gera fyrir eða eftir sturtu.

Þurrburstun er frábær leið til þess að koma blóðflæði líkamans af stað og auka flæði sogæðakerfisins, sem hjálpar að hreinsa burtu óþarfa eiturefni og fitu sem hafa safnast upp í líkamanum. Einnig dregur þurrburstun úr appelsínuhúð.

  1. Takið þurrbursta eða grófan þvottapoka og standið nakin inni á baði. Gott að gera fyrir sturtu. Ekki er mælt með að setja þurrbursta undir vatn í sturtu. 
  2. Burstið húðina með hringlaga hreyfingum í átt að hjarta og þar til húðin er orðin örlítið bleik (hægt að gera á annaðhvort þurra eða raka húð).
  3. Endurtakið yfir allan líkamann og sérstaklega fætur, rass og handleggi. 
  4. þegar þið eruð að bursta líkamann, horfið á líkamann og segið „ég elska þig“. Horfið í spegilinn og segið „ég elska þig“ og/eða horfið á þá líkamsparta sem þið eruð ánægð með. Gerið í 2 mín. í senn.

Fyrir bestu útkomuna notið þurrburstun þrisvar sinnum í viku (má gera tvisvar sinnum á dag).

Ég vona að þú prófir þessa þurrburstun og það hjálpar þér að hugsa fallegra til líkama þíns. 

Ekki gleyma svo að deila með vinkonu, sérstaklega þeirri sem gæti þurft á smá sjálfsumhyggju að halda!

www.lifdutilfulls.is  - Instagram Lifðu til fulls Facebook síða Lifðu til fulls

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál