Sykurlausar Marengsbombur, karamellusósa og bláberjaís

Sykurlaus súkkulaðimús er mikið lostæti.
Sykurlaus súkkulaðimús er mikið lostæti. mbl.is/Marta María

Jólin eru tími til að baka, útbúa deserta og leggja aðeins meira í matreiðsluna en hina daga ársins. Þeim fjölgar ört sem kjósa að setja ekki sykur inn fyrir sínar varir og þá þarf að finna aðrar leiðir til að gera tilveruna sykursæta án þess að nota raunverulegan sykur. Þar að segja ef fólk vill hoppa á sætindavagninn! 

Það sem notið hefur vins ælda hjá þeim sem vilja ekki hvítan sykur er að nota náttúrulega sætu eins og stevíu og erythriol. Íslenska vörumerkið Good Good sérhæfir sig í framleiðslu á sykurlausum vörum sem eru einstakar á bragðið. Choco Hazel er súkkulaðismyrja sem minnir á Nutella nema hið fyrrnefnda er án hvíts sykurs. Heima hjá mér er þessari súkkulaðismyrju smurt á nánast allt nema soðna ýsu. Þótt smyrjan sé góð ein og sér eða út á vöfflur, pönnukökur eða út á heilsuskálina þá er hún líka sniðugur kostur í bakstri og vel hægt að nota hana í gamlar klassískar uppskriftir í stað súkkulaðibráðar. Auðvitað er hnetubragð sem er ekki þegar dökkt súkkulaði er hitað yfir vatnsbaði en ég mæli eindregið með því að þið prófið ykkur áfram.

Það er til dæmis ógurlega ljúffengt að nota súkkulaðismyrjuna í súkkulaðibúðing sem margir tengja við jólin. Þess má geta að þessi uppskrift var prófuð á nokkrum vel völdum starfsmönnum Morgunblaðsins og fékk algera toppeinkunn. 

Sykurlausir marengstoppar.
Sykurlausir marengstoppar. mbl.is/Marta María

Marengsbombur

Ef það eitthvað sem Íslendingar eru sólgnir í þá er það marengs. Í heiminum er talað um þrjár gerðir af marengs; franskan, ítalskan og svissneskan marengs. Ef það er eitthvað sem við gætum kallað íslenskan marengs þá er það það að nota stevíu í staðinn fyrir sykur. Íslendingar eru nefnilega svo góðir í að finna leiðir til að halda áfram að gera vel við sig þótt heilsufarið leyfi kannski ekki hvítan sykur í bílförmum. Sweet Like Sugar frá Good Good er dæmi um aðra góða vöru sem er sniðug fyrir þá sem eru að mastera sykurleysi sitt. Þetta duft má nota á marga vegu en það er til dæmis fullkomið í marengs og viti menn, hann er nánast alveg eins og hefðbundinn. Bara örlítið önnur áferð!

4 eggjahvítur

6 msk. Sweet Like Sugar frá Good Good

½ tsk. vanilludropar

¼ tsk. cream of tartar

örlítið salt

Aðferð Það skiptir máli að hafa eggjahvíturnar við stofuhita þegar bakað er úr þeim. Það á ekki bara við í þessari uppskrift heldur almennt þegar bakað er.

Áður en þið byrjið að þeyta eggjahvíturnar skuluð þið stilla ofninn á 120°C og setja smjörpappír á bökunarplötur.

Þeytið eggjahvíturnar og þegar þær eru stífþeyttar bætið þið sætunni út í ásamt cream of tartar, salti og vanilludropum. Ef þið viljið hafa fallegt lag á marengstoppunum er gott að setja deigið í sprautupoka og búa til kökur líkt og þið væruð að setja ís í brauðform í ísbúð. Þegar þið eruð búin að setja deigið fallega á bökunarpappírinn er marengsinn bakaður í um það bil 20 mínútur. Þá er lækkað á ofninum og hann settur í 90°C og kökurnar bakaðar í 20 mínútur í viðbót. Best er að gera þetta á kvöldin og leyfa marengsinum að kúra inni í ofninum þegar búið er að slökkva á honum.

Klístruð karamellusósa

Karamellusósa er góð út á ís, út á kökur og svo er líka hægt að drekka hana (ef maður er alveg stjórnlaus í jólastemningunni). Það dásamlega við karamellusósu er að hún er ofureinföld, sem er eitthvað svo frábært.

50 g ósalt smjör

100 g síróp frá Good Good

4 dl rjómi

örlítið salt

Aðferð Byrjið á að setja smjör og síróp á pönnu og látið það bráðna saman. Þá er rjómanum bætt út í. Þegar áferðin er orðin eins og þið væruð að fara að brúna kartöflur er karamellusósan tilbúin.

Sykurlaus bláberjaís

Hvað gerum við við fjórar eggjarauður sem urðu afgangs þegar marengsinn var bakaður? Jú, við búum til ís. Til þess að halda áfram með sykurlausa þemað ákvað ég að útbúa sykurlausan bláberjaís úr bláberjasultunni frá Good Good. Það er að sjálfsögðu hægt að leika sér út í hið óendanlega við ísgerð en hér er hugmynd sem þið gætuð tekið lengra ef þið eruð í mjög miklu stuði!

4 eggjarauður

50 g bláberjasulta frá Good Good

3 dl þeyttur rjómi

Aðferð Þið byrjið á að þeyta rjómann og setja hann til hliðar. Þá eru eggjarauðurnar þeyttar vel og vandlega og bláberjasultunni bætt út í. Í lokin er rjómanum bætt varlega út í.

Þið gætuð til dæmis bætt sykurlausu súkkulaði með stevíu út í ísinn eða skorið tvö stykki af Krunchy Keto bar niður og sett út í hann. Svo má alltaf bæta við frosnu mangói eða hindberjum. Jólin í ár eru svolítið jólin þar sem þið prófið ykkur áfram og finnið nýjar hliðar á ykkur sem þið vissuð ekki af.

Vöffluvagninn

Matargatið og átvaglið sem hér skrifar og bakar af miklum móð er með vöfflusýki á háu stigi. Vandamálið er að venjulegar vöfflur með hveiti og öllu því geta valdið heilsufarsveseni ef þær eru borðaðar í of miklu magni en þegar vöfflurnar eru orðnar glútenlausar þolir búkurinn þær betur. Hér er því uppskrift að glútenlausum vöfflum sem eru guðdómlegar með súkkulaðismyrju eða sykurlausu sírópi.

3 egg

sirka 5 dl laktósafrí mjólk eða kókosmjólk

100 g smjör

1 bolli glútenlaust hveiti með lyftingu

2 msk. kókoshveiti

1 tsk. salt

1 tsk. vanilludropar

Aðferð Hrærið eggin saman í skál, bræðið smjörið og hrærið það saman við. Þá er glútenlausu hveiti bætt út í smátt og smátt og líka kókoshveitinu. Þá er mjólkin sett út í hægt og rólega. Það eru um það bil 5 dl í uppskriftinni en allar alvöruhúsmæður finna það þegar vöffludeigið er akkúrat upp á tíu. Bætið svo vanilludropum saman við ásamt örlitlu salti. Svo eru vöfflurnar bakaðar. Gott er láta þær standa á grindinni úr bakaraofninum svo þær verði sérlega stökkar og bragðgóðar. Svo er líka ágætt að baka þær jafnóðum og borða þær meðan þær eru ennþá funheitar og stökk ar.

mbl.is/Marta María

Sykurlaus súkkulaðibúðingur

3 egg

100 g Choco Hazel frá Good Good

1½ dl rjómi.

Aðferð Aðskiljið eggin og stífþeytið eggjahvíturnar og setjið til hliðar. Þá er rjóminn þeyttur og settur til hliðar. Því næst eru eggjarauðurnar hrærðar í höndunum í skál og súkkulaðismyrjunni frá Good Good bætt út í. Þetta er dálítið óþjált til að byrja með en það þýðir ekki að gefast upp. Fólk þarf að halda áfram að hræra því smátt og smátt verður áferðin mýkri. Þegar búið er að vinna eggjarauðurnar saman við súkkulaðismyrjuna er stífþeyttu eggjahvítunum bætt út í. Í blálokin er rjómanum blandað saman við súkkulaðiblönduna.

Það er hægt að fara nokkrar leiðir í að bera súkkulaðibúðinginn fram. Hægt er að setja hann í fjögur gamaldags kampavínsglös og passar magnið akkúrat í fjögur slík. Það er líka hægt að láta búðinginn taka sig í stórri skál en þá tekur örlítið lengri tíma að láta hann stífna.

Þeir sem eru ekki alveg ávaxtalausir geta skreytt með jarðarberjum eða sett örlítinn þeyttan rjóma út á ef fólk vill gera sérlega vel við sig.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál