Íbúð Sóleyjar Tómasdóttur á sölu

Tómas Schalk, Sóley Tómasdóttir, Aart Schalk og Anna Schalk.
Tómas Schalk, Sóley Tómasdóttir, Aart Schalk og Anna Schalk. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sóley Tómasdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi VG og eiginmaður hennar, Adrianus Philip Schalk, hafa sett hæð sína við Hofsvallagötu á sölu. Hjónin búa í Hollandi og hefur íbúðin verið í útleigu síðan þau fluttu frá Íslandi. 

Íbúðin er 148 fm að stærð og stendur í húsi sem byggt var 1951. Íbúðin er þar af með 22 fm bílskúr. Í auglýsingu á fasteignavef mbl.is kemur fram að íbúðin sé í útleigu til 30. apríl 2019 og kaupandi geti yfirtekið leigusamninginn við kaup á íbúðinni. 

Íbúðin er stílhrein, allt hvítmálað og eikarparket á gólfum. Nema í forstofu, baði og eldhúsi, þar eru flísar. Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting með plastborðplötu og á milli skápa eru svartar mósaík-flísar. 

Af fasteignavef mbl.is: Hofsvallagata 59

Sóley Tómasdóttir.
Sóley Tómasdóttir. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál