Hanna Stína og Níels skrá sig í samband

Innanhússarkitektinn Hanna Stína og flugstjóri Níels Dungal eru búin að skrá sig í samband á Facebook. Parið hnaut um hvort annað í sumar og hefur notið lífsins upp á síðkastið. Þau voru til dæmis saman á Siglufirði á dögunum en sá bær hefur laðað til sín Íslendinga í sumarfríinu. 

Hanna Stína er einn af þekktustu innanhússarkitektum landsins en hún lærði fagið á Ítalíu. Síðan þá hefur hún átt velgengni að fagna í sínu sviði. Hún hefur hannað fjölmörg heimili, veitingastaði og skrifstofur fyrirtækja. Hún hannaði meðal annars staðinn Duck and Rose sem opnaði í húsnæði Café París á dögunum. Níels er flugstjóri hjá Icelandair. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál