Hjörtur Jóhann Jónsson leikari og Brynja Björnsdóttir leikmyndahönnuður létu pússa sig saman undir berum himni fyrir vestan um helgina. Brúðguminn segir helgina hafa verið alveg fullkomna en veislan fór fram í gamalli hlöðu.
„Við kynntumst í leiklistarskólanum, þar sem við vorum að leika hjón,“ segir Hjörtur. Hann segir þau hafa ákveðið að velja þessa dagsetningu, 13. ágúst, vegna þess að það er besti veðurglugginn fyrir vestan.
Hjörtur er menntaður leikari frá Listaháskóla Íslands og fór síðasta vetur með hlutverk Bubba Morthens í sýningunni Níu líf. Auk þess hefur hann leikið í fjölda leikrita og meðal annars unnið til Grímuverðlauna fyrir leik sinn í Ríkharði III. Brynja er með meistaragráðu í leikmyndahönnun og hefur hannað fjölda leikmynda í leikritum. Hjörtur og Brynja eiga saman tvö börn
Yfir hundrað manns mættu í brúðkaupið og hjálpuðu til við undirbúning á föstudagskvöldinu. Eftir athöfnina á laugardag var borðaður góður matur í hlöðunni og svo hlegið, grátið og dansað fram á rauðanótt.
Spurður af hverju þau hafi valið að halda brúðkaupið sitt á Vestfjörðunum segir Hjörtur: „Þessi staður hefur einhvern galdur yfir sér sem er erfitt að lýsa, dásamlega fallegur og dularfullur.“