Sunneva og Bensi saman í þrjú ár

Sunneva Eir Einarsdóttir og Benedikt Bjarnason hafa verið saman í …
Sunneva Eir Einarsdóttir og Benedikt Bjarnason hafa verið saman í þrjú ár. Ljósmynd/Pétur Fjeldsted

Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Sunneva Eir Einarsdóttir og kærasti hennar Benedikt Bjarnason hafa verið saman í þrjú ár. Parið fagnaði sambandsafmælinu í gær og birti fallegar myndir á Instagram. 

Sunneva er einn af vinsælustu áhrifavöldum landsins með tæplega 57 þúsund fylgjendur á Instagram. Hún er einnig í raunveruleikaþáttunum LXS sem sýndir eru á Stöð 2 um þessar mundir. 

Parið hefur brallað margt í gegnum árin og ferðast til ótal landa saman. Síðast heimsóttu þau Grikkland með vinahópnum, en þau hafa líka farið til Kúbu, Bandaríkjanna og fleiri landa. 

Sunneva og Bensi fögnuðu sambandsafmælinu með því að fara út að borða á Apótekinu og fóru svo í Sky Lagoon eftir matinn.

Smartland óskar parinu innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál