Af hverju ertu ekki með beinar augabrúnir?

Audrey Hepburn með fallega snyrtar augabrúnir sem vísa til hliðanna …
Audrey Hepburn með fallega snyrtar augabrúnir sem vísa til hliðanna en ekki niður. Pinterest.

Útlitið snýst um smáatriðin. Glans á hári eða jafnvel bara augabrúnir. Við höldum áfram að fóta okkur áfram í frumskógi tískunnar og spyrjum að þessu sinni af hverju þú hafir ekki augabrúnirnar þínar beinar í anda helstu tískufyrirmynda í heiminum.

Þegar að kemur að augabrúnum þá erum við margar hverjar alls ekki nógu kröfuharðar. Á Íslandi eru fjölmargir fagmenn sem eru sérstaklega góðir að lita augabrúnir og hár, en þegar við vitum ekki hvað við viljum er erfitt að gera okkur til geðs. Þegar kemur að klassískri fegurð er eitt sem margar konur eiga sameiginlegt og það er lögun augabrúna. Coco Chanel var fyrst kvenna til að draga augabrúnir sínar á þennan sérstaka hátt, en á eftir henni hafa fjölmargar fallegar konur fylgt á eftir. Meðal annars hin ógleymanlega Diana Vreeland og Audrey Hepburn.

Coco Chanel lék sér með augabrúnir sínar. Hér er hún …
Coco Chanel lék sér með augabrúnir sínar. Hér er hún með þær ýktar og nokkuð beinar. Pinterest.
Hér eru augabrúnir Coco Chanel náttúrulegri en alltaf frekar beinar.
Hér eru augabrúnir Coco Chanel náttúrulegri en alltaf frekar beinar. Pinterest.
Tískudrottningin Diana Vreeland, sem hefur verið einn valdamesti aðilinn í …
Tískudrottningin Diana Vreeland, sem hefur verið einn valdamesti aðilinn í tískuheiminum í gegnum tíðina, var alltaf náttúrleg, en með þessar beinu brúnir. Pinterest.
Audrey Hepburn með fullkomnar augabrúnir og einfalt útlit.
Audrey Hepburn með fullkomnar augabrúnir og einfalt útlit. Pinterest.

Konur frá Asíu, sér í lagi Kóreu, eru margar hverjar mjög lagnar við þessa gerð af augabrúnum enda eru þær klassískar og fallegar og með einstakt lag á því að gefa smáatriðum gaum.

Konur frá Kóreu eru sérfræðingar í að gera náttúrulegar beinar …
Konur frá Kóreu eru sérfræðingar í að gera náttúrulegar beinar brúnir. Pinterest.
Náttúrulegar beinar augabrúnir.
Náttúrulegar beinar augabrúnir. Pinterst.
Einstaklega fallegar augabrúnir. Asískar konur kunna að vinna þetta útlit …
Einstaklega fallegar augabrúnir. Asískar konur kunna að vinna þetta útlit vel. Eins er talið að þessar augabrúnir fari hringlaga andliti einstaklega. Pinterest.

Af konum í dag sem gera þetta vel má nefna fyrirsætuna Cara Delevingne. Eins má nefna leikkonurnar Jennifer Connelly, Natalie Portman og Jessica Alba. 

Jennifer Connelly fullkomnar þetta útlit.
Jennifer Connelly fullkomnar þetta útlit. Pinterest.
Cara með fullkomnar augabrúnir. Töff og ákveðið útlit.
Cara með fullkomnar augabrúnir. Töff og ákveðið útlit. Pinterest.
Jessica Alba með beinar augabrúnir að sjálfsögðu.
Jessica Alba með beinar augabrúnir að sjálfsögðu. Pinterest.

Það sem þarf að hafa í huga er að plokka hæsta punkt augabrúnanna aðeins sem og undir þær í endann. En eflaust er best að leita til fagfólks með þetta eins og annað. Jafnframt er fallegt að augabrúnir séu í sama lit og hárrótin. 

Þessi mynd sýnir meira en mörg orð klassann við að …
Þessi mynd sýnir meira en mörg orð klassann við að hafa beinar brúnir í stað hinna hefðbundnu brúna. Hátískan í hnotskurn. Pinterest.
Af tískuvikunni í New York. Þessi smáatriði eru unnin fullkomlega …
Af tískuvikunni í New York. Þessi smáatriði eru unnin fullkomlega hjá hátískumerkjunum. Þessir litlu hlutir gera gæfumuninn á tískupöllunum. Beinar augabrúnir kalla á klassa. Pinterest.


Við von­um svo sann­ar­lega að þessi mála­flokk­ur verði vald­efl­andi fyr­ir kon­ur í land­inu og gefi þeim hug­mynd­ir sem þær geta notað til að byggja sig upp og verða frjáls­ar til að gera hluti sem þær lang­ar til sjálf­ar. Upp­hafið að því að breyta til og fara út fyr­ir þæg­indaramm­ann er að okk­ar mati að varpa ljósi á hluti sem okk­ur þykja áhuga­verðir. Tíska og út­lit get­ur verið vanda­samt mál­efni að ræða. Grein­in er ekki gagn­rýni á all­ar þær frá­bæru kon­ur sem eru á sín­um for­send­um, held­ur til að opna aug­un fyr­ir marg­vís­leg­um hlut­um þegar kem­ur að tísku og út­liti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál