„Sveitabrúðkaup er frábær upplifun fyrir alla“

Stephanie Langridge giftist Magnúsi Bjarka eiginmanni sínum í hlöðu í …
Stephanie Langridge giftist Magnúsi Bjarka eiginmanni sínum í hlöðu í rómantísku sveitabrúðkaupi að Eyvindartungu. Ljósmynd/Kaja Balejko

Stephanie Langridge kom upphaflega til Íslands frá Ástralíu til að starfa sem leiðsögumaður á jöklunum. Örlögin tóku í taumana og hún giftist Magnúsi Bjarka eiginmanni sínum í hlöðu í rómantísku sveitabrúðkaupi að Eyvindartungu. 

Stephanie Langridge og eiginmaður hennar Magnús Bjarki Snæbjörnsson reka veislusal og fjárbú ásamt foreldrum hans, þeim Snæbirni Smára Þorkelssyni og Helgu Jónsdóttur. Fjölskyldan býr að Eyvindartungu sem er fjölskyldubú í næsta nágrenni við Laugarvatn, sem er ríflega klukkustundar akstur frá Reykjavík.

„Áður fyrr var stundaður hér blandaður búskapur en í dag rekum við lítið fjárbú ásamt raforkuframleiðslu. Á jörðinni var fyrst reist rafstöð 1929 sem hefur nú verið endurnýjuð og í dag eru tvær rafstöðvar hér. Útihús á jörðinni sem nú hafa fengið nýtt hlutverk eru upphaflega fjós, hlaða, súrheysturn og skemma. Leitast hefur verið við að breyta þeim eins lítið og kostur er, þar sem hluti af fegurð bygginganna er fólginn í tengingu þeirra við fortíðina. Staðsetningin er mjög svo falleg með Laugarvatnsfjall og Kálfstinda (þar sem Flosatind ber hæst) til norðurs og síðan dásamlegt útsýni til suðurs með Heklu í forgrunni.“

Magnús Bjarki Snæbjörnsson var glæsilegur á brúðkaupsdaginn.
Magnús Bjarki Snæbjörnsson var glæsilegur á brúðkaupsdaginn. mbl.is

Hlaðan gerð upp fyrir brúðkaupið

Stephanie segir að upphaflega hafi ætlunin verið að hreinsa út hluta af hlöðunni fyrir brúðkaup þeirra Magnúsar.

„Verkefnið vatt síðan fljótlega upp á sig þannig að það endaði með því að við héldum 120 manna brúðkaupsveislu í hlöðunni! Faðir brúðgumans, húsasmiðurinn Snæbjörn, var fullur innblásturs þegar kom að endurbótum húsanna, enda hafði hann lengi leitað að afsökun til að leggjast í það verkefni. Við fengum dásamlegt veður eins og oft er á Laugarvatni; logn og blíðu og um kvöldið tóku við leiftrandi norðurljós gestum okkar til mikillar gleði. Sérstaklega erlendum gestum sem margir hverjir höfðu ekki séð slíkt áður.“

Hvernig er að búa á Íslandi?

„Mér finnst ég vera búin að festa rætur hér á Íslandi og finnst skemmtilegt hversu mikil áhrif veðurfarið hefur á alla hér og hversu margbreytilegt lífið er fyrir áhrif árstíðanna. Eins og áður sagði kom ég upphaflega hingað til lands til að vinna uppi á jöklunum. Ég hef því verið búsett í Öræfum undanfarin þrjú ár og hef kynnst þar dásamlegri ósnortinni náttúru auk alls konar veðurs. Eftir að ég hef kynnst betur íslenskum lífsháttum hef ég lært að meta siði og menningu Íslendinga í gegnum mína íslensku fjölskyldu og haft gaman af.“

Hvað er einstakt við sveitabrúðkaup?

„Sveitabrúðkaup er frábær upplifun fyrir alla veislugesti, ekki einungis fyrir brúðhjónin sjálf. Þetta er kjörið tækifæri til að halda veislu í nágrenni við heimili þitt. Ekki partí sem einungis stendur yfir í nokkrar klukkustundir, heldur dýrðlega veislu fyrir gestina þína sem getur staðið yfir heila helgi. Það er gott að hafa nægjanlegt rými og nálægð við náttúruna fyrir sjálfan þig og fjölskylduna. Gott tækifæri til að hægja aðeins á sér og njóta.“

Hefur hlaðan verið notuð fyrir fleiri brúðkaup?

„Fyrsta brúðkaupið hér var brúðkaupið okkar og okkur óraði ekki fyrir því hvert framhaldið yrði svo. Búið er að bóka þrjú brúðkaup í haust og svo nokkur á næsta ári sem ekki er búið að staðfesta endanlega. Við höfum fengið fjölda fyrirspurna og reiknum með að fara á fullt með þetta sumarið 2021.“

Stephanie Langridge og eiginmaður hennar Magnús Bjarki Snæbjörnsson reka veislusal …
Stephanie Langridge og eiginmaður hennar Magnús Bjarki Snæbjörnsson reka veislusal og fjárbú ásamt foreldrum hans. mbl.is

Aðeins meira lagt í brúðkaup í Ástralíu

Hverjar eru brúðkaupshefðirnar í þínu landi?

„Það tíðkast í Ástralíu að fólk gifti sig áður en það fer að eignast börn. Það er litið á giftinguna sem skref sem tekið er áður en fólk fer að kaupa sér húsnæði eða eignast börn. Giftingar í Ástralíu eru oftast fjölmennari og dýrari en þær sem ég hef séð hér á landi. Í kringum 3-7 milljónir íslenskra króna. Það er lögð mikil áhersla á að veislan sé margmenn, íburðarmikil og umfram allt fullkomin í alla staði. Ég kann betur við þetta persónulega, meira tengt náttúrunni og jafnframt óheflaðra þema sem ég hef séð hér á Íslandi.“

Hvað ætti fólk að hafa í huga við undirbúning brúðkaups í hlöðu?

„Eins og áður sagði er hlaðan okkar í ríflega klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík. Fólk verður að hafa það í huga og því að athuga með gistingu í nágrenninu eða að öðrum kosti hvernig það ætlar að komast til baka til Reykjavíkur. Við erum með lítinn sumarbústað til útleigu hér en ef veislugestir hafa ekki aðgang að sumarbústað eða einhverju slíku hér nálægt eða ef von er á mörgu fólki eru gistimöguleikar í nágrenninu. Þar má t.d. nefna Héraðsskólann sem næsti nágranni okkar. Þegar við giftum okkur skipulögðum við nokkrar ferðir til baka til Reykjavíkur með smárútum. Þegar kemur að því að skreyta hlöðuna þarf ekki svo mikið til, þar sem hlaðan sjálf er mjög skemmtileg ein og sér. Að mínu mati þarf að hafa í huga allt umhverfi hlöðunnar og hvað gestirnir myndu vilja gera. Hægt er að laga klæðnað veislugesta að því sem gera skal, t.d. smábrennu, litlum göngutúrum um nágrennið eða einhverjum athöfnum utandyra. Sveitabrúðkaup þarf ekki að vera óheflað, sveitalegt eða gamaldags. Það getur verið mjög svo nýtískulegt og smart með því einfaldlega að breyta nokkrum vegg- og borðskreytingum og breyta þannig ásýnd salarins.“

Sveitabrúðkaup geta verið rómantísk og skemmtileg.
Sveitabrúðkaup geta verið rómantísk og skemmtileg. mbl.is

Mælir með að hafa góðan veislustjóra

Áttu góð ráð fyrir þá sem eru að undirbúa brúðkaup núna?

„Ég mæli með að hafa góðan veislustjóra. Við vorum með bróður Magnúsar sem veislustjóra um kvöldið. Hann var bráðfyndinn og hélt uppi fjörinu.

Eins finnst mér áhugavert að hafa söng og tónlist. Mér fannst mjög skemmtilegur söngurinn á þorrablótinu okkar. Í brúðkaupinu sungum við í súrheysturninum, en hann hefur einstakan og mjög skemmtilegan hljómburð.

Ef þið eruð sjálf að skipuleggja brúðkaupið ykkar er gott að vera með tékklista á netinu, svo hægt sé að stroka út jafnóðum ef eitthvað passar ekki við veisluna. Síðan er gott að yfirfara þennan lista reglulega frá því þremur mánuðum til viku fyrir brúðkaupið.

Þegar kemur að skreytingum finnst mér mikilvægt að hafa í huga að vera með skreytingar sem hægt er að nýta eftir brúðkaupið eða selja að loknu brúðkaupinu ef halda á kostnaði í lágmarki. Ég fann helling af dóti á Facebook-síðunni Sölusíða – brúðkaupstengdir hlutir og í Góða hirðinum. Eins langar mig að nefna að ég mæli með að velja ljósmyndara með það í huga – hvernig ljósmyndir hann tekur þegar þú ert ekki með honum. Ég valdi að fá Kaju til að taka ljósmyndir, vegna þess að í brúðkaupi vina okkar náði hún að fanga fallegar stundir meðal gestanna einnig. Það var mikilvægt fyrir okkur að ná upplifun vina okkar og fjölskyldu.“

Örlögin tóku í taumana og úr varð rómantískt sveitabrúðkaup í …
Örlögin tóku í taumana og úr varð rómantískt sveitabrúðkaup í hlöðunni að Eyvindartungu. mbl.is

Að taka daginn ekki of hátíðlega

Hvað ætti fólk að forðast?

„Ekki vera sjálf með allt á herðunum á sjálfan brúðkaupsdaginn. Við Magnús eyddum lunganum af fimm mánuðum ásamt fjölskyldunni í að gera upp hlöðuna. Skreytingum og öðrum slíkum undirbúningi lauk á síðustu stundu. Ef þið hafið möguleika á slíku, látið þá einhverja fjölskyldumeðlimi eða vini sjá um lokaundirbúninginn eða ráðið einhvern fagmann í verkið.“

Að lokum segir Stephanie að vanalega reddist hlutir fyrir brúðkaupið.

„Það er viðbúið að eitthvað fari úrskeiðis. Sem dæmi var seinkun á flugi foreldra minna þannig að þau komu ekki fyrr en þremur klukkustundum fyrir giftingarathöfnina.

Ljós og kerti geta verið útbrunnin áður en myndir eru teknar. Einhver gæti gleymt ræðunni sinni eða orðið ofurölvi. Það verður bara að taka hlutunum eins og þeir eru og hlæja svo að öllu saman eftir á.“

Hlaðan var glæsileg á brúðkaupsdaginn.
Hlaðan var glæsileg á brúðkaupsdaginn. mbl.is
Skreytt með ístaði og öðrum fallegum hlutum.
Skreytt með ístaði og öðrum fallegum hlutum. mbl.is
Gestirnir skemmtu sér konunglega í hlöðubrúðkaupinu.
Gestirnir skemmtu sér konunglega í hlöðubrúðkaupinu. mbl.is
Það var dansað fram á nótt í brúðkaupinu.
Það var dansað fram á nótt í brúðkaupinu. mbl.is
Stephanie Langridge og eiginmaður hennar Magnús Bjarki Snæbjörnsson reka veislusal …
Stephanie Langridge og eiginmaður hennar Magnús Bjarki Snæbjörnsson reka veislusal og fjárbú ásamt foreldrum hans, þeim Snæbirni Smára Þorkelssyni og Helgu Jónsdóttur. mbl.is
Gömul ljósmynd að Eyvindartungu.
Gömul ljósmynd að Eyvindartungu.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál