Ef það er einhvern tímann stemning fyrir því að klæða sig í sitt fínasta púss þá er það um þessar mundir. Fólk sem er búið að vera fast heima hjá sér í heimavinnu þarf hugbreytandi fataefni eins og pallíettur. Fataefni sem eykur gleðina og lyftir andanum upp um nokkur stig. Fólk á það til að halda aftur af sér en í ár höfum við engu að tapa. Við þurfum að leyfa okkur að njóta lífsins í þessum leiðindum. Það skiptir kannski ekki höfuðmáli hvernig flíkurnar eru í sniðinu, ekki annað en það að þér líði vel í dressinu og getir dansað og haft gaman án þess að herpingurinn yfirtaki líf þitt.