Þetta eru snyrtivörur ársins 2020

Ljósmynd/Pexels/Cottonbro

Ár hvert vel­ur Smart­land 25 bestu snyrti- húð- og hár­vör­ur árs­ins en list­inn er yf­ir­grips­mik­ill og fjöl­breytt­ur. Blaðamenn Smart­lands prófa yf­ir­leitt flest sem kem­ur á snyrti­markaðinn hér­lend­is og eru því í lyk­il­stöðu til að meta hvað stóð upp úr á ár­inu. Árið var ekkert venjulegt ár og settu fjarfundir og heimavinna mark sitt á snyrtivörukaup landsmanna enda fór fólk að kaupa betri handsápur en oft áður og sprittbrúsar urðu jafnsjálfsagðir og salernispappír. 

FÖRÐUN

Farði ársins

Chanel Les Beiges Teint Belle Mine Natur­elle SPF 25

Franska tískuhúsið Chanel er sterkt þegar kemur að förðunarvörum enda leggja franskar mikinn metnað í hylkið utan um sálina. Í haust kom splunkunýr farði frá Chanel sem heillaði þá sem prófuðu hann upp úr skónum. Þessi farði gefur fallega áferð sem jafnar út húðlit og þekur vel án þess að verða eins og fólk sé með grímu í andlitinu. Fæst í Hagkaup. 

Les Beiges Teint Belle Mine Natur­elle frá Chanel.
Les Beiges Teint Belle Mine Natur­elle frá Chanel.

Litaða dagkrem ársins

Guinot Hydra Finish Cream SPF 15

Þeir sem þekkja franska snyrtivörumerkið Guinot vita að litaða dagkremið frá merkinu er hið mesta þarfaþing í öldugangi lífsins. Það gefur ákaflega náttúrulega áferð og andlitið virkar farðalaust á sama tíma og það veitir húðinni mikinn ljóma. Það hentar vel undir farða en líka eitt og sér þegar fólk nennir ekki að setja mikinn metnað í förðun. Fæst á snyrtistofum.

Farðagrunnur ársins

Smashbox Photo Finish Vitamin Glow

Fólk sem hefur elskað farðagrunnana frá Smashbox í gegnum tíðina á eftir að kunna að meta þennan farðagrunn. Hann er borinn á andlitið á undan farðanum sjálfum og fyllir upp í húðholur og veitir fallegan ljóma um leið. Það er hlýleg áferð á honum og hann ilmar af ferskleika án þess að það verði of mikið. Fæst í Hagkaup. 

Smashbox Photo Finish Vitamin Glow.
Smashbox Photo Finish Vitamin Glow.

Maskari ársins

Lancôme Monsieur Big Volumizing Mascara

Þessi maskari frá Lancôme býr yfir miklum töfrum. Hann þykkir og lengir augnhárin og hentar vel fyrir þá sem vilja vera með gerðarleg augnhár án þess að vera með augnháralengingu eða gerviaugnhár. Þessi maskari er fáanlegur vatnsheldur og er það smekksatriði hvort fólk kunni að meta það eða ekki. Fæst í Hagkaup og Lyfju.

Lancôme Monsieur Big Volumizing Mascara.
Lancôme Monsieur Big Volumizing Mascara.

Augnskuggapalletta ársins

Sensai Eye Colours Palette 02 Night Sparkle

Þessi augnskuggapalletta sem skartar fjórum litum, dökkbrúnum, perlulituðum, bronslituðum og ljósbrúnum naut mikilla vinsælda 2020. Hún var fullkomin til nota dagsdaglega en líka frábær fyrir fjarfundinn. Hægt er að leika sér með þessa liti, búa til dramatíska stemmningu en líka frábær til þess að fá smá líf á augnlokin. Fæst í Hagkaup. 

Sensai Eye Colours Palette 02 Night Sparkle.
Sensai Eye Colours Palette 02 Night Sparkle.

Sólarpúður ársins

Guerlain Terracotta Bronzing Powder

Þetta sólarpúður er löngu orðið klassískt. Það býr yfir 30 ára gamalli sögu af velgengni sem notendur þess þekkja. Auðvelt er að nota þetta sólarpúður til að skyggja andlitið en það er líka mjög nytsamlegt sem kinnalitur. Fæst í Hagkaup. 

Ljómavara ársins

Chanel Les Beiges Fluide Enlumineur

Ljómavara ársins kemur frá franska tískuhúsinu Chanel. Um er að ræða ljóma í fljótandi formi sem hægt er að bera á allt andlitið undir farða eða bera á andlitið á þá staði sem fólk vill láta ljóma sérstaklega. Fæst í Lyf og heilsu og Hagkaup. 

Chanel Les Beiges Fluide Enlumineur.
Chanel Les Beiges Fluide Enlumineur.

Hyljari ársins

Yves Saint Laurent All Hours Concealer

Það komst enginn í gegnum þetta erfiða ár nema eiga góðan hyljara. Yves Saint Laurent er þekkt fyrir gullpennann sinn en All Hours hyljarinn frá þeim kom sterkur inn á árinu og var mikið notaður. Fæst í Hagkaup. 

Yves Saint Laurent All Hours Concealer.
Yves Saint Laurent All Hours Concealer.

Varalitur ársins

Dior Rouge Matte 999

Í mars bárust þær fréttir að Dior snyrtivörur væru aftur fáanlegar á Íslandi. Þetta vakti kátínu hjá Diorelskendum. Rauði varaliturinn 999 naut mikilla vinsælda á árinu enda býr hann yfir þeim eiginleikum að haldast vel á vörunum og klínast ekki út um allt. Fæst í Lyf og heilsu og Hagkaup. 

Dior Rouge Matte 999.
Dior Rouge Matte 999.

Gloss ársins

Clarins Instant Light Natural Lip Perfector

Þetta gloss naut mikilla vinsælda á árinu. Það kemur í nokkrum litum og gefur vörunum fallega áferð. Það sem er frábært við þetta gloss er að það er líka hægt að nota það sem kinnalit. Fæst í Hagkaup. 

Augabrúnavara ársins

Urban Decay Inked 3 Day Brow

Á tímum sem þessum þegar snyrtistofur voru lokaðar þurfti fólk að grípa til sinna eigin ráða. Þá kom þetta augabrúnaefni frá Urban Decay að góðum notum. Efnið er í fljótandi formi með litlum skáskornum bursta sem auðvelt er að nota til að móta augabrúnirnar. Það góða við þetta efni er það endist í þrjá daga og því fullkomið fyrir mjög latt fólk. Fæst í Hagkaup. 

Urban Decay Inked 3 Day Brow.
Urban Decay Inked 3 Day Brow.
Augnblýantur ársins

Chanel Stylo Yeux Waterproof Long-Lasting Eyeliner
Ef það var einhvern tímann mikilvægt að vera með vatnsheldan blýant um augun þá var það 2020. Þessi augnblýantur hefur þá eiginleika að haggast ekki og það naut vinsælda á árinu að setja hann inn í vatnslínu augnanna. Fæst í Lyf og heilsu og Hagkaup. 
Chanel Stylo Yeux Waterproof Long-Lasting Eyeliner.
Chanel Stylo Yeux Waterproof Long-Lasting Eyeliner.
Naglalakk ársins
Yves Saint Laurent La Laque Couture 73' nail polish
Dökkar neglur áttu upp á pallborðið 2020. Þetta naglalakk frá Yves Saint Laurent skapaði dramatík og gerði heimafötin að sparifötum. Fæst í Lyf og heilsu. 
Yves Saint Laurent La Laque Couture 73 nail polish.
Yves Saint Laurent La Laque Couture 73 nail polish.

HÚÐUMHIRÐA

Andlitshreinsir ársins

/skin regimen/ Cleansing Cream

Þessi andlitshreinsir sló í gegn 2020. Hann þurrkar ekki húðina og mælt er með því að nota hann einu sinni að morgni og tvisvar að kvöldi. Þar að segja þrífa andlitið upp úr honum þegar fólk vaknar og þrífa andlitið tvisvar á kvöldin. Fyrst með því að þrífa farða af og svo til þess að hreinsa húðina almennilega. Þessi andlitshreinsir er borinn á með höndunum, andlitið skrúbbað og þvegið með volgu vatni. Það þarf því enga bómull eða neitt slíkt sem er mun umhverfisvænna. Fæst á Beautybar.is 

/skin regimen/ Cleansing Cream.
/skin regimen/ Cleansing Cream.

Andlitskrem ársins 

SkinCeuticals A.G.E Interrprer

Þetta dagkrem er áhrifarækt og dregur verulega úr öldrunarmerkjum eins og fínum línum. Kremið jafnar út húðina og eykir teygjanleika hennar ásamt því að viðhalda góðum raka. Það er mjög gott fyrir þroskaða húð og inniheldur bláberjaseyði, proxylane og phytosphingosine. Fæst á Húðlæknastöðinni. 

SkinCeuticals A.G.E Interrprer.
SkinCeuticals A.G.E Interrprer.

Augnkrem ársins

Comfort Zone Hydramemory Eye Gel

Þetta augnkrem veitir mikinn raka og hjálpar til við að draga úr þreytueinkennum og þrota í kringum augun. Það hentar fólki vel sem vinnur mikið fyrir framan tölvu og eða sefur ekki nógu mikið. Fæst á snyrtistofum. 

Comfort Zone Hydramemory Eye Gel.
Comfort Zone Hydramemory Eye Gel.

Húðmeðferð ársins

BIOEFFECT 30 day Treatment

Um er að ræða öfluga húðmeðferð sem minnkar hrukkur, roða og veitir húðinni góðan raka. Mælt er með því að nota þessa 30 daga meðferð einu sinni til fjórum sinnum á ári en þessir húðdropar eru virkasta varan frá BIOEFFECT. Fæst í Lyfju og Hagkaup. 

BIOEFFECT 30 day Treatment.
BIOEFFECT 30 day Treatment.

Augnmaski ársins

Shiseido Vital Perfection Uplifting and Firming Express Eye Mask

Þessi andlitsmaski er afar áhrifaríkur og hjálpar augnsvæðinu að verða frískandi á einni viku. Maskinn er auðveldur í notkun en hann er settur undir augun og mikilvægt er að slaka á á meðan maskinn vinnur. Fæst í Hagkaup.

Shiseido Vital Perfection Uplifting and Firming Express Eye Mask.
Shiseido Vital Perfection Uplifting and Firming Express Eye Mask.

Sólarvörn ársins

SkinCeuticals Miner­al Radi­ance SPF 50

Þessi sólarvörn var á lista Smartlands í fyrra yfir bestu snyrtivörur ársins og kemst aftur inn í ár vegna góðra eiginleika. Þessi sólarvörn inniheldur eingöngu vörn úr steinefnum og inniheldur lit þannig að hún jafnar ásýnd húðarinnar. Hægt er að nota þessa sólarvörn sem léttan farða eða litað dagkrem. Fæst á Húðlækna­stöðinni.

SkinCeuticals Mineral Radiance Defense SPF 50.
SkinCeuticals Mineral Radiance Defense SPF 50.

Handsápa ársins

L'Occitane Shea Lavender Liquid Soap 

Árið 2020 var ár handþvottarins og enginn komst upp með annað en að þvo hendur sínar í tíma og ótíma. Svo hendurnar yrðu ekki eins og þær væru 150 ára þurfti sérstaklega góða sápu. Þessi franska hágæðasápa fleytti þeim lengra sem vildu hafa mjúkar hendur en það góða við þessa sápu er að hægt er að kaupa áfyllingu og því hentar hún vel fyrir umhverfissinna þessa heims. Fæst í L'Occitane í Kringlunni. 

L'Occitane Shea Lavender Liquid Soap.
L'Occitane Shea Lavender Liquid Soap.

HÁR

Sjampó ársins

Kevin.Murphy Angel Wash

Þetta sjampó kom eins og himnasending inn í líf þeirra sem voru með þurrt, slitið og litað hár. Það mýkir hárið og það fær fallega glansandi áferð. Árið 2020 var aldrei jafn mikilvægt að eiga gott sjampó, sérstaklega þegar hárgreiðslustofur voru lokaðar og hárið þurfti sérlega ummönnun. Fæst á Beautybar.is 

Kevin.Murphy Angel Wash.
Kevin.Murphy Angel Wash.

Þurrsjampó ársins

Label.M Brunette Dry Shampoo

Ef það er einhver hárvara sem bjargaði hárinu á dökkhærðum konum 2020 þá er það þetta þurrsjampó með lit frá Label.M. Þetta þurrsjampó er úðað í rótina og virkar ekki bara eins og þurrsjampó heldur líka sem litur. Fólk sem komst ekki á hárgreiðslustofur vegna samkomubanns notaði þetta sjampó til þess að redda á sér rótinni á ögurstundu. Fæst á Beautybar.is.

Litasjampó ársins

Davines Alchemic Shampoo Chocolate

2020 var ár heimahárs þegar hárgreiðslustofur voru lokaðar. Á þessum tímabilum dó fólk ekki ráðalaust og bjargaði því sem bjargað varð með litasjampói. Eitt það besta er frá Davines og kemur það í mörgum litum. Fæst á Beautybar.is.

Davines Alchemic Shampoo Chocolate.
Davines Alchemic Shampoo Chocolate.

Hárnæring ársins

Eleven Miracle Hair Treatment

Fólk sem var í vandræðum með þurrt hár hoppaði hæð sína þegar það fór að nota þessa hárnæringu sem borin er í blautt hárið og skilin eftir í hárinu. Þessi næring er rakagefandi og byggir upp viðkvæmt hár. Þessi næring kemur í veg fyrir klofna enda sem var afar mikilvægt 2020 þegar fólk komst ekki á hárgreiðslustofu. Þeir sem áttu það til að lenda í alvarlegum flókavandræðum leystu það með þessari næringu. Auk þess veitir þessi næring auka fyllingu og gerir meira úr hárinu sem sumum finnst eftirsóknarvert. Fæst á Beautybar.is.

Eleven Miracle Hair Treatment.
Eleven Miracle Hair Treatment.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál